Sendiherra segir Finna óttaslegna Jóhann K. Jóhannsson skrifar 19. ágúst 2017 12:04 Markaðstorgið þar sem árásin átti sér stað er fjölsóttur og vinsæll staður í miðborg Turku. Vísir/AFP
Fimm voru handteknir í Finnlandi í nótt í tengslum við hnífaárás á markaðstogi í borginni í Turku í gær. Sendiherra Íslands í Finnlandi segir hræslu vera meðal almennings í landinu og enginn hafi búist við því á hryðjuverk yrðu framinn á þessum stað. Árásarmaðurinn gekk inn á Puutori-markaðstogið í suðvesturhluta borgarinnar Turku í Finnlandi klukkan rúmlega fjögur að staðartíma í gær þar sem hann fór á milli fólks og stakk það með hnífi.Tveir finnskir ríkisborgarar létust í árásinni og átta slösuðust þar af tveir Svíar og einn Ítali en lögreglan hefur skilgreint árásina sem hryðjuverk. Árásarmaðurinn er átján ára frá Marokkó og er innflytjandi í landinu en hann náðist skömmu eftir árásina þar sem lögreglumenn skutu hann í fótinn og særðu. Fimm voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar í Finnlandi í gærkvöldi og í nótt í tengslum við árásina en strax var grunur um að fleiri ættu aðild að ódæðinu. Hlutverk þeirra sem handteknir voru í nótt er til rannsóknar en lögregluyfirvöld hafa gefið út að þeir hafi átt og verið í samskiptum við ódæðismanninn.Sjá einnig: Tveir látnir og átta særðir eftir hnífaárás í FinnlandiKristín A. Árnadóttir, sendiherra Íslands í Finnlandi, segir aukinn viðbúnað í landinu og ótta meðal almennings. „Það er auðvitað skelfing sem einkennir viðbrögðin og fjölmiðlar fjalla mikið um málið. Lögreglan hefur viðbúnaðarstig sitt í öllu landinu þannig að það hefur átt sér stað eitthvað mat á því hvort von sé á fleiri árásum af þessum toga,“ segir Kristín. Turku í Finnlandi er lítill og friðsæll bær þar sem búa færri en 200 þúsund manns. „Hann er á stærð við Reykjavík, friðsæl háskólaborg og mikið af ungu fólki. Í raun engin ástæða til að ætla að svona árás eigi sér stað þar frekar en einhvers staðar annars staðar,“ segir Kristín.Eru í viðbragðsstöðu Markaðstorgið þar sem árásin átti sér stað er fjölsóttur og vinsæll staður í miðborg Turku. Þar búa þónokkrir Íslendingar en sendráð Íslands hefur ekki upplýsingar um hvort þeir hafi verið nærri þegar árásin átti sér stað. Hún segist hafa sett sig í samband við ræðismann Íslands í Turku en þau séu ekki að leita fólki upp. Þau vonist heldur til þess að fólk setji sig í samband við þau ef að tilefni er til. „En við erum í viðbraðgsstöðu eins og aðrir,“ segir Kristín. Kristín segir að lögregluyfirvöld hvetji fólk til þess að forðast fjölmenna staði „Auðvitað verður þetta til þess að allir óttast og það er búið að gefa út hérna í Finnlandi viðvörun um það að fólk sé á fjölmennum stöðum og að það eigi helst að hafa hægt um sig,“ segir Kristín A. Árnadóttir, sendiherra Íslands í Finnlandi.
Tengdar fréttir Tveir látnir og átta særðir eftir hnífaárás í Finnlandi Lögreglan í Finnlandi segist hafa skotið mann sem grunaður er um að hafa stungið fjölda fólks í borginni Turku í suðvesturhluta landsins. 18. ágúst 2017 14:15 Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fara fram á farbann Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Sjá meira
Tveir látnir og átta særðir eftir hnífaárás í Finnlandi Lögreglan í Finnlandi segist hafa skotið mann sem grunaður er um að hafa stungið fjölda fólks í borginni Turku í suðvesturhluta landsins. 18. ágúst 2017 14:15