Flugvallarstarfsmaður kýldi farþega sem hélt á barni Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 30. júlí 2017 19:55 Starfsmaðurinn var ekki á vegum Easy Jet. Vísir/getty
Flugvallarstarfsmaður á flugvellinum í Nice kýldi farþega í andlitið þegar hann leitaði svara vegna tafa sem urðu á flugi hans með Easy Jet flugfélaginu. Farþeginn var með litla barnið sitt í fanginu þegar flugvallarstarfsmaðurinn veitti honum höggið. The Guardian greinir frá þessu. Einn farþeganna, Arabella Arkwright, náði mynd af atvikinu og hefur myndin farið í mikla dreifingu á vefnum. Starfsmenn Easy Jet eru forviða yfir málinu og reyna nú að komast til botns í því. Þrettán klukkustunda töf varð á flugi frá Nice til Luton og var komin þreyta í mannskapinn þegar atvikið átti sér stað. Kona mannsins sem var kýldur hafði kvartað yfir því að enginn barnamatur væri á svæðinu. Arabella Arkwright, sem tók myndina, lýsti atvikinu í úvarpsviðtali hjá breska ríkisútvarpinu BBC. Hún sagði að farþeginn hafi, með barnið sitt í fanginu, gengið upp að flugvallarstarfsmanninum og spurt hann spurninga. Í stað þess að svara manninum hafi flugvallarstarfsmaðurinn franski sett upp háðsglott og kýlt manninn í andlitið. Eiginmaður Arabellu Arkwright skarst í leikinn og dró flugvallarstarfsmanninn í burtu frá farþeganum og hélt honum þar til lögreglan mætti á svæðið. Lögreglan fjarlægði bæði farþegann og flugvallarstarfsmanninn en þá mótmæltu farþegarnir hástöfum og kröfðust þess að farþeganum, sem varð fyrir ofbeldinu, yrði hleypt um borð í vélina. Mikil fagnaðarlæti brutust út í vélinni þegar maðurinn komst loksins um borð. Starfsmaðurinn var ekki á vegum Easy Jet.EasyJet employee hitting man holding baby after delay of over 14hours #easyJet #Telegraph #Dailymail #TheSun pic.twitter.com/3ZZChG0djB— Arabella Ark (@ArabellaArkwri1) July 29, 2017
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sjá meira