Hvetja fólk til þess flytja húsgögn ekki í lestum Samúel Karl Ólason skrifar 13. júlí 2017 09:25 Maðurinn var sektaður fyrir að reyna að flytja ísskáp í lest og var sendur á brott með ísskápinn.
Fyrirtækið Queensland Rail birti í vikunni myndband sem hefur vakið nokkra furðu í Ástralíu. Þar má sjá tvo menn reyna að flytja ísskáp og sófa með lestum fyrirtækisins. Það mun þó vera bannað að gera slíkt, en birting myndbandsins er liður í átaki fyrirtækisins í að fá fólk til að haga sér betur um borð í lestum.Samkvæmt ABC News í Ástralíu var maðurinn með ísskápinn sektaður um 252 ástralska dali fyrir tilraunina. Fréttamaður ABC var fyrir tilviljun staddur á lestarstöðinni í apríl þegar maðurinn reyndi að ferja ísskápinn og deildi hann myndum af því á Twitter.Manninum með sófann virðist þó hafa tekist ætlunarverk sitt, en á myndbandinu má sjá hvernig hann tekur sófann út úr lest og virðist hafa lokið ferð sinni. Hann finnur svo innkaupakerru til þess að flytja sófann áfram. Talskona lestafyrirtækisins segir að hugsa verði til annarra farþega og að lestirnar séu ætlaðar fólki, ekki ísskápum og sófum. Hún sagði þó að eitt það skrítnasta sem hún vissi til að hefði verið tekið um borð í lestir fyrirtækisins væri sláttuvél. Einnig hefði glerauga fundist í einni lest og jafnvel útihurð.Yes that's right, fridge on a train. pic.twitter.com/mifCDBJWMz— Chris O'Brien (@COBrienBris) April 18, 2017
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Innlent Fleiri fréttir Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Sjá meira