Segja Brexit samninganefndina karlaklúbb Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 18. júlí 2017 20:56 Þingkonurnar segja baráttu fyrir kvenréttindum aðeins í orði en ekki á borði hjá Theresu May. Visir/API
Fimmtíu og sex þingkonur skrifuðu undir áskorun til forsætisráðherra Bretlands, Theresu May, þess efnis að endurskoða kynjahlutfallið í bresku samninganefndinni sem falið er að leiða Bretland úr Evrópusambandinu. Segja þingkonurnar að samninganefndin sé eins og hver annar karlaklúbbur að því er fram kemur á vef The Guardian. Aðeins ein kona, Catherine Webb, er í tíu manna samninganefnd sem er falið þetta stóra verkefni fyrir Bretlands hönd. Þingkonurnar segja að útgönguferlið komi til með að hafa gífurleg áhrif á þjóðina og jafnframt að það séu nokkur málefni sem varði konur sérstaklega og þess vegna sé núverandi kynjahlutfall þeim mikið áhyggjuefni. „Það vantar kvenkynsraddir inn í samningaviðræðurnar, bæði hvað varðar hefðbundin mál eins og efnahagsmál og til að finna út hvernig við viðhöldum réttindum á vinnustað – sem að mestu eru tryggð í löggjöf Evrópusambandsins. Skert réttindi verkalýðs myndu koma verst niður á konum, allt frá fæðingarorlofi til mismununar á vinnustað,“ segja þingkonurnar í opnu bréfi til forsætisráðherrans. Seema Malhotra, ein kvennanna, sagði að May héldi því fram að kvenréttindi væru henni kappsmál en þess sæist ekki stað í verki í hennar ráðherratíð. Hún segir jafnframt að það sé sláandi að forsætisráðherra hafi gefið grænt ljós á samninganefnd með jafn lítilli þátttöku kvenna og var á þingi fyrir tuttugu og fimm árum. Hún segir það vera á könnu ríkisstjórnarinnar að ryðja brautina og allra síst ætti hún að færa okkur aftur á við í tíma.Þingkonurnar beina spjótum sínum að Theresu May og vilja að hún endurskoði kynjahlutfall bresku samninganefndarinnar.Vísir/AFP
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sjá meira