Aðeins Henry og Bergkamp gerðu betur í fyrstu hundrað leikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2017 15:30 Alexis Sánchez fagnar í gærkvöldi. Vísir/Getty
Alexis Sánchez lék í gærkvöldi sinn hundraðasta leik fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni og hélt upp á það með því að skora annað marka liðsins í 2-0 sigri á Southampton. Þetta var 20 deildarmark Sánchez á tímabilinu og jafnframt 49. mark hans fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni en hann er að klára sitt þriðja tímabil með liðinu. Alexis Sánchez er 28 ára Sílemaður sem kom frá Barcelona til Arsenal í júlímánuði 2014. Hann hefur síðan verið í algjöru lykilhlutverki í liðinu og einn af bestu mönnum deildarinnar. Alexis Sánchez hefur alls átt þátt í 70 mörkum liðsins í þessum fyrstu hundrað leikjum sínum og það hafa aðeins tveir leikmenn félagsins gert betur. Frakkinn Thierry Henry kom að 81 mark í fyrstu hundrað deildarleikjum sínum og Hollendingurinn Dennis Bergkamp (71) átti þátt í einu marki meira en Sánchez (70). Thierry Henry og Dennis Bergkamp eru tveir ástsælustu leikmenn í sögu Arsenal en þeir urðu báðir enskir meistarar með félaginu og það oftar en einu sinni. Alexis Sánchez hefur hinsvegar aldrei verið nálægt því að vinna enska titilinn á sínum þremur tímabilum í London. Fjórði á listanum er síðan Ian Wright sem kom með beinum hætti að 65 mörkum í fyrstu 100 deildarleikjum sínum með félaginu. Það er hægt að sjá topplistann hér fyrir neðan en þar hafa allir unnið enska meistaratitilinn nema Alexis Sánchez.100 - Only Henry and Bergkamp were involved in more goals in their first 100 PL games for Arsenal than Alexis Sanchez. Gunner. pic.twitter.com/izMsLH8JFO — OptaJoe (@OptaJoe) May 11, 2017 Framtíð Alexis hjá Arsenal er í óvissu en hann hefur verið stöðugt orðaður við önnur lið í ensku úrvalsdeildinni og eru lið Manchester City og Chelsea þar efst á blaði. Samningur Sánchez rennur út 30. júní 2018 en hann hefur ekki viljað skrifað undir nýjan samning við Arsenal sem hefur ýtt undir allar sögusagnirnar að hann sé á förum frá félaginu.
Enski boltinn Mest lesið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Golf Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Sport Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Golf Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Fótbolti Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Fótbolti Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Fótbolti Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Fótbolti „Ef ég geri það ekki þá mun ég kannski sjá eftir því alla ævi“ Sport Siggi Raggi for holu í höggi á vellinum þar sem Íslandsmótið fer fram Golf Fleiri fréttir Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Gyökeres í flugvél á leið til London Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Eiginkona Diogo Jota með vasaklútaskilaboð Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Sjá meira