Chelsea í úrslit enska bikarsins eftir ótrúlegan leik Kristinn Páll Teitsson skrifar 22. apríl 2017 18:15 Willian kom Chelsea yfir á Wembley með frábærri aukaspyrnu. vísir/getty
Chelsea vann 4-2 sigur á nágrönnum sínum í Tottenham í ótrúlegum undanúrslitaleik enska bikarsins sem lauk á Wembley rétt í þessu en þrátt fyrir að Tottenham hafi á löngum köflum verið sterkari aðilinn þá var það Chelsea sem komst áfram. Antonio Conte ákvað að hvíla tvær af stjörnum liðs síns, Eden Hazard og Diego Costa en brasilíski kantmaðurinn Willian kom inn í stað Hazards og var ekki lengi að láta til sín taka. Kom hann Chelsea yfir á 5. mínútu úr aukaspyrnu en Harry Kane svaraði um hæl fyrir Tottenham með skalla á 18. mínútu. Willian var aftur á ferðinni undir lok venjulegs leiktíma þegar hann kom Chelsea yfir af vítapunktinum og var staðan því 2-1 í hálfleik, Chelsea í vil. Ungstirnið Dele Alli jafnaði metin á nýjan leik á 52. mínútu af stuttu færi eftir stórkostlega sendingu frá Christian Eriksen og voru leikmenn Tottenham líklegri til að sigla sigrinum heim á þessum tímapunkti. Conte kallaði á kanónurnar tvær, Costa og Hazard á þessum tímapunkti og það tók Hazard aðeins fimmtán mínútur að koma Chelsea yfir á nýjan leik, féll boltinn þá fyrir fætur hans við vítateigslínuna og lagði hann boltann í fjærhornið. Fimm mínútum síðar gerði Nemanja Matic út um leikinn með frábæru marki en þá lagði Hazard boltann fyrir Matic 30 metrum frá marki og sá serbneski hamraði boltann í netið, slánna-inn. Óverjandi fyrir Lloris í marki Tottenham. Tottenham reyndi að klóra í bakkann á lokamínútum leiksins og komst Harry Kane nálægt með aukaspyrnu sinni í eitt skiptið en forskot Chelsea haggaðist ekki og fögnuðu lærisveinar Conte því sigrinum.18:07 Kane nálægt því að minnka muninn. Thiabaut Courtois heldur ekki aukaspyrnu hans en hreinsar af línunni! Stuttu síðar flautar dómari leiksins leikinn af.17:55 Matic að klára þetta með geeeegggjuðu marki! Hazard leggur boltann fyrir hann 25-30 metrum frá marki og hann lætur vaða, sláin inn. Óverjandi fyrir Lloris.17:49 Líkt og varað var við! Hornspyrna Chelsea fellur fyrir fætur Eden Hazard og sá belgíski skorar framhjá Hugo Lloris. Hornspyrnan fer af Kyle Walker á Hazard við vítateigslínuna og hann klárar færið vel.17:45 Tottenham liggur á Chelsea þessa stundina og virðast vera líklegri en leikmenn Chelsea geta auðveldlega refsað með góðri skyndisókn. 17:35 Hér koma kanónurnar hjá Chelsea. Eden Hazard og Diego Costa eru að gera sig klára og koma inn fyrir Batshuayi og Willian. Engin þrenna á brasilíumanninn í dag.17:27 Tottenham jafnar metin strax í upphafi seinni hálfleiks! Eriksen með aðra konfekt-stoðsendingu, núna á Dele Alli sem stingur sér fram fyrir varnarmenn Chelsea og stýrir boltanum í netið af stuttu færi. Frábær.17:05 Lærisveinar Antonio Conte fara sáttari inn í hálfleikinn með 2-1 forskot þrátt fyrir að hafa ekkert spilað neitt frábærlega. Tottenham hefur stýrt umferðinni en tvö mörk frá brasilíska kantmanninum þýða að Chelsea leiðir í hálfleik.16:58 Vítaspyrna dæmd á Son! Straujar Victor Moses að óþörfu við vítateigslínuna og vítaspyrna dæmd. Batshuayi vill taka vítið en Azpilicueta tekur af honum boltann og réttir Willian boltann sem kemur honum í netið og kemur Chelsea yfir aftur!16:45 Aðeins búið að róast yfir leiknum, stöðva þurfti leik í fimm mínútur áðan á meðan litið var á David Luiz en Dele Alli virtist traðka á honum en sleppa með það.16:34 Kane jafnar metin! Var búinn að ógna í sókninni áður og hann skallar svo fyrirgjöf Christian Eriksen í fjærhornið.16:32 Frábær fyrirgjöf inn á Batshuayi en hann kemur engum krafti í skallann og Lloris grípur þetta. Tottenham búið að vera meira með boltann en leikmenn Chelsea eru alltaf tilbúnir fyrir skyndisókn.16:24 Kante grípur Dier í landhelgi en Tottenham sleppur með skrekkinn. Vinnur boltann af Dier í vítateignum en Alderweireld lokar vel á sendinguna inn á Batshuayi.16:20 Þetta var ekki lengi gert! Aukaspyrna dæmd á Tottenham utan teigs og Willian kemur og leggur boltann í fjærhornið. Martraðabyrjun fyrir Tottenham. 16:15 Þá hefjum við leik á Wembley, það er falleg athöfn til minnis Ugo Ehiogu fyrir leik en Ehiogo sem var miðvörður enska landsliðsins meðal annars lést í vikunni í störfum sem þjálfari hjá Tottenham.Fyrir leik: Tottenham ekki með eiginlegan vinstri bakvörð inná, Ben Davies situr á bekknum. Spurning hvort Vertonghen verði í bakverðinum eða að Tottenham sé að tefla fram þremur miðvörðum í 3-5-2 kerfi.Fyrir leik: Stóru fréttirnar eru þær að Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, hvílir Diego Costa og Eden Hazard. Michy Batshuayi fær sjaldgæft tækifæri í fremstu víglínu en Willian tekur sæti Hazard. Þá fær Nathan Ake tækifærið í miðri vörn Chelsea.Fyrir leik: Góðan daginn og velkomin með okkur í beina lýsingu frá leik Chelsea og Tottenham í undanúrslitum FA-bikarsins á Wembley.
Enski boltinn Mest lesið Dahlmeier látin en ómögulegt að ná líki hennar af fjallinu Sport Ólympíumeistari stórslösuð eftir grjóthrun Sport Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Handbolti Hvernig hefur Liverpool efni á Alexander Isak? Enski boltinn Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik Körfubolti UEFA tapaði milljörðum króna á Evrópumóti kvenna Fótbolti Með á fótboltaspjöldum þrátt fyrir ákæru vegna nauðgunar Enski boltinn Wirtz með fyrsta markið sitt fyrir Liverpool Enski boltinn Gott að koma til Íslands en skrýtið að mæta Blikunum Fótbolti Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Körfubolti Fleiri fréttir Wirtz með fyrsta markið sitt fyrir Liverpool Vefsíða Arsenal hrundi í miðju Gyokeres æði Bayern staðfestir kaupin á Diaz: „Lucho ist hier“ Flóðbylgjuviðvörunin hefur ekki áhrif á leik Liverpool Hvernig hefur Liverpool efni á Alexander Isak? Með á fótboltaspjöldum þrátt fyrir ákæru vegna nauðgunar Trafford segist hundrað sinnum betri í dag Liverpool nær í framherja frá félagi Beckham og Gary Neville Eddie Howe segir að Newcastle hafi ekki enn fengið tilboð í Isak Alisson flaug heim vegna persónulegra mála Gæti enn spilað í úrvalsdeildinni eftir að hafa fallið þrívegis Nýtt útlit hjá Guardiola Nýtt undrabarn hjá Arsenal Flúraði sig til minningar um Jota Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Gyökeres í flugvél á leið til London Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Sjá meira