Síðasti Norður-Lundúnaslagurinn á White Hart Lane | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2017 10:00
Erkifjendurnir Tottenham og Arsenal mætast í Norður-Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn hefst klukkan 15:30. Þetta verður síðasti Norður-Lundúnaslagurinn á White Hart Lane en Tottenham mun flytja á nýjan heimavöll fyrir tímabilið 2018-19. Á næsta tímabili spilar liðið á Wembley. Tottenham er eina liðið sem getur ógnað toppliði Chelsea sem sækir Everton heim klukkan 13:05. Sigrar hjá Tottenham og Everton í dag myndu gera toppbaráttuna afar áhugaverða. Tottenham er á mikilli siglingu og hefur unnið átta deildarleiki í röð með markatölunni 23-4. Arsenal er í 6. sætinu og í baráttu um Meistaradeildarsæti. Skytturnar eru fimm stigum á eftir Manchester City sem situr í 4. sætinu. City sækir Middlesbrough heim klukkan 13:05. Boro vann Sunderland í síðustu umferð en það þarf mikið að gerast til að liðið bjargi sér frá falli. Manchester United tekur á móti Swansea City í fyrsta leik dagsins sem hefst klukkan 11:00. Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað á Old Trafford undanfarin tvö ár og vill eflaust halda í þá hefð. Swansea er í átjánda og þriðja neðsta sæti deildarinnar, þremur stigum frá fallsæti. Velska liðið myndi því þiggja eitthvað úr leiknum í dag. United er í 5. sæti deildarinnar en getur stokkið upp í það þriðja, allavega um stundarsakir, með sigri.Leikir dagsins: 11:00 Man Utd - Swansea (beint á Stöð 2 Sport HD) 13:05 Everton - Chelsea (beint á Sport HD) 13:05 Middlesbrough - Man City (beint á Sport 2 HD) 15:30 Tottenham - Arsenal (beint á Sport HD)
Enski boltinn Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira