Örlög Svananna ráðin án marka Gylfa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2017 07:00 Gylfi Þór Sigurðsson svekktur eftir enn einn leikinn sem Swansea mistókst að skora í. Velska liðið þarf sárlega á mörkum frá íslenska landsliðsmanninum að halda á lokasprettinum. vísir/Getty
Fyrir rétt rúmum mánuði var Swansea City með jafn mörg stig og Bournemouth og Leicester City og ofar í töflunni en bæði Crystal Palace og Hull City. Eftir erfiða mánuði fyrir áramót leit út fyrir að Gylfi og félagar væru á góðri leið með að bjarga sæti sínu í deildinni. Hlutirnir eru hins vegar fljótir að breytast í boltanum og uppkoma Crystal Palace og Hull City síðustu vikur hefur slegið í takt við stiga- og markaþurrð velska liðsins. Eftir 1-0 tap fyrir West Ham á laugardaginn er Swansea aftur komið niður í fallsæti. Crystal Palace vann Arsenal 3-0 á mánudagskvöldið og hefur fengið átta fleiri stig en Swansea í síðustu fimm leikjum. Sömu sögu er að segja af Hull þrátt fyrir tap fyrir Manchester City um helgina.Verður alltaf keyptur í sumar Gylfi þarf nú örugglega ekki að hafa miklar áhyggjur af því að spila ekki í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabil hvernig sem fer enda mikill áhugi hjá nokkrum úrvalsdeildarliðum að kaupa hann í sumar. Eftir frábæran tíma hjá Swansea væri aftur á móti afar leiðinlegt að skilja við liðið sem Championship-lið. Það hefur verið algjört stiga- og markahallæri hjá Swansea síðustu vikur og þar hefur vantað það sem hefur haldið liðinu á floti í vetur eða sköpun frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Gylfi kom að marki í sjö leikjum í röð frá 21. janúar til 11. mars og Swansea vann fjóra af þeim og komst alla leið upp í fimmtánda sætið eftir sigur á Englandsmeisturum Leicester City 12. febrúar.graf/fréttablaðið729 markalausar mínútur Gylfi hefur nú ekki skorað í átta leikjum í röð, samtals 729 mínútur, og íslenski landsliðsmaðurinn hefur enn fremur ekki komið að marki í síðustu fjórum leikjum Swansea. Gylfi kom síðast að marki í 2-1 tapi fyrir Hull 11. mars síðastliðinn. Hann hefur nú spilað í 360 mínútur án þess að skapa mark fyrir sitt lið. Síðan er liðinn einn mánuður og á þessum 30 dögum hefur staða Swansea versnað mikið. Gylfi hefur komið með beinum hætti að 19 af 37 mörkum Swansea-liðsins í ensku úrvalsdeildinni í vetur með því annaðhvort að skora (8) eða gefa stoðsendingu (11) og það þarf því ekki að koma mikið á óvart að liðið hefur ekki skorað mikið í þessum undanförnum fjórum leikjum. Swansea er aðeins með eitt stig og eitt mark í þessum fjórum síðustu leikjum þar sem Gylfi hefur ekki náð að búa til mark. Á sama tíma hefur liðið farið úr sextánda sæti niður í fallsæti. Það sem er mesta áhyggjuefnið er að Swansea hefur ekki verið að ná í mörg stig í innbyrðisleikjum á móti liðum í neðri hluta deildarinnar eins og Hull City, Bournemouth, Middlesbrough og West Ham.Missa stigin til fallbaráttuliða Uppskeran úr leikjum á móti þeim undanfarinn mánuð eru aðeins eitt stig sem kom í markalausu jafntefli við Middlesbrough. Hinir leikirnir hafa tapast og það boðar ekki gott að bæði missa af stigum og færa um leið helstu keppninautunum mikilvæg stig í innbyrðisbaráttu liðanna um að vera áfram í ensku úrvalsdeildinni 2017-18. Næsti leikur Gylfa og félaga er á móti Watford um komandi helgi. Þar fær Gylfi tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi – binda enda á þessa fyrrnefndu bið og ná um leið að koma að marki í fyrsta sinn á móti Watford í ensku úrvalsdeildinni. Eitt er víst – Swansea þarf lífsnauðsynlega á því að halda.
Enski boltinn Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Enski boltinn Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Körfubolti Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Í straff vegna skilaboða til ólögráða stúlku Sakaðir um ólöglegar upptökur Neyðast til að styðja liðið sem þeir hata Carrick segist bíða rólegur Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Sjá meira