Rajoy mætir til Katalóníu Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2017 09:15 Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Vísir/afp
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, mun í dag heimsækja Katalóníu í fyrsta sinn frá því að stjórn hans samþykkti að svipta héraðinu sjálfstjórn í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar héraðsþingsins fyrir tveimur vikum. Rajoy hefur boðað til kosninga til héraðsþingsins í Katalóníu í næsta mánuði og mun koma fram á kosningafundi mið-hægri flokks síns, Þjóðarflokksins Partido Popular. Áætlað er að um 750 þúsund manns hafi komið saman í Barcelona í gær til að mótmæla því að margir leiðtogar Katalóna hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna sjálfstæðisyfirlýsingarinnar sem stjórnlagadómstóll Spánar hefur dæmt ógilda. Deilur landsstjórnar og Katalóna má rekja til ákvörðunar héraðsstjórnarinnar á sínum tíma að boða til þjóðaratkvæðisgreiðslu um sjálfstæði héraðsins sem fram fór í byrjun októbermánaðar. Fulltrúar katalónskra yfirvalda sögðu 92 prósent kjósenda hafa greitt atkvæði með sjálfstæði en þátttakan var einungis um 43 prósent. Sambandssinnar sniðgengu atkvæðagreiðsluna í stórum stíl enda höfðu spænskir dómstólar dæmt þjóðaratkvæðagreiðsluna ólöglega. Spánarstjórn leysti í kjölfarið upp héraðsstjórn Katalóníu, tók yfir stjórn héraðsins og boðaði til nýrra kosninga þann 21. desember. Carles Puigdemont, fyrrverandi forseti katalónsku héraðsstjórarinnar, hefur hafist við í Belgíu síðustu vikur, en katalónskir ráðherrar hafa margir verið ákærðir fyrir uppreisn og misnotkun á almannafé.
Mest lesið Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Tveir handteknir í aðgerðum lögreglu Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Fleiri fréttir „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Sjá meira