Tony Adams: Vinalaus Wenger væri löngu búinn að fá sparkið frá Real Madrid Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. maí 2017 10:45 Arsene Wenger og Tony Adams eru ekki vinir. vísir/getty
Tony Adams, fyrrverandi fyrirliði Arsenal, finnur til með Arsene Wenger, knattspyrnustjóra félagsins, vegna þess að hann er vinalaus að sögn Adams. Í viðtali við The Guardian hellir Adams sér yfir Frakkann. Hann segir Wenger fá of mikið greitt á meðan unglingaþjálfarar félagsins eru á lágum launum. Adams er enn þá reiður eftir að Wenger kom í veg fyrir að hann sneri aftur til félagsins sem þjálfari. Adams fékk tækifæri sem þjálfari hjá Granada á síðustu leiktíð en það fór ekki vel. „Ég var hjá Arsenal í 23 ár og svo er komið svona fram við mig? Þetta var til skammar. Ég er fimmtugur þannig ég eyddi næstum hálfri ævinni hjá Arsenal. Það er fjandans stytta af mér fyrir utan Emirates-völlinn!“ segir Adams. „Wenger hefði verið rekinn eftir eitt ár hjá Real Madrid. Hann væri búinn að fara frá einu félagi til annars en hjá Arsenal ræður hann öllu. Stjórnin gerir ekkert. Arsene gerir bara það sem hann vill.“ „Hann á líka í skrítnu sambandi við peninga. Hann fær átta milljónir punda á ári en unglingaþjálfarar Arsenal fá 30.000 pund á ári. Unglingaþjálfarar Chelsea fá 90.000 pund. Taktu frekar sjö milljónir Arsene og hækkaðu laun unglingaþjálfaranna. Það er ekki eins og Arsene sé að nýta peningana sína í að halda flottar veislur fyrir vini sína. Hann á enga vini. Ég vorkenni honum aðeins,“ segir Tony Adams. Arsenal tókst ekki að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð og Adams sér ekki fram á frábæra tíma á Emirates. „Arsenal verður ekki nálægt því að vinna titilinn. Ég vona að Wenger hætti en mér er samt alveg sama því hann kom í veg fyrir að ég gæti starfað aftur fyrir félagið. Hann er frábær þjálfari en ekki sá besti sem ég hef starfað með,“ segir Tony Adams.
Enski boltinn Mest lesið The Athletic valdi íslensku treyjuna þá ljótustu á EM í ár Fótbolti Kemur til varnar Arnari bróður sínum: „Nú er nóg komið“ Sport Portúgalinn Pedro Neto má taka sér frí: „Hann er mjög leiður“ Fótbolti Á réttri leið eftir röð áfalla: „Sagði við Guðna að ég væri bara hætt“ Sport Eldræða Ása: „Fyrirsláttur hjá fólki að halda og tengja þetta“ Fótbolti Partey ákærður fyrir nauðgun Fótbolti Arnar hélt sér á brautinni í hálfmaraþoninu Sport Átta mánaða gamall með Íslandi á EM Fótbolti Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Íslenski boltinn EM í dag: Nú hitti skrattinn ömmu sína Fótbolti Fleiri fréttir Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Sjá meira