Lokuðu snemma til að bjarga ómetanlegum listaverkum Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. ágúst 2017 07:39 Safnstjórinn Eike Schmidt fyrir framan eitt af þekktari verkum safnsins, Fæðingu Venus eftir Botticelli. Vísir/Getty
Fjölsóttasta listasafn Ítalíu, Uffizzi-söfnin í Flórens, þurfti að loka 5 tímum á undan áætlun á föstudaginn síðastliðinn vegna hitabylgjunnar sem nú hrellir Evrópubúa.Safnstjórinn Eike Schmidt útskýrir að vatnsmagnið í ánni Arno, sem drífur áfram loftkælingu safnsins, hafi lækkað svo mikið fyrir helgi að ekki hafi lengur verið hægt að kæla safnið. Því hafi verið brugðið á það ráð að loka klukkan 13:30 en safnið lokar alla jafna klukkan hálf 7. Gert er ráð fyrir því að helmingur allra héraða Ítalíu muni lýsa yfir neyðarástandi vegna hitabylgjunnar, sem fengið hefur nafnið Lúsífer, og þurrka sem henni hafa fylgt. Hitinn á Ítalíu hefur víða verið um og yfir 40 gráður um helgina, þar með talið í Flórens á föstudaginn þegar ákveðið var að loka hinu sögufræga safni.Söfnin greindu frá lokuninni á Twitter-síðu sinni.#Uffizi #oggi chiusi per guasto all'impianto di condizionamento. Ci scusiamo per il disagio. #Domani #5agosto saremo regolarmente aperti! pic.twitter.com/SvsZI1ahfP— Gallerie Uffizi (@UffiziGalleries) August 4, 2017 Sjá einnig: Íbúar í Evrópu búa sig undir mesta hita í um áratug Meðal listmuna á safninu er Fæðing Venusar eftir Sandro Botticelli, Davíðsstytta eftir Michelangelo, sjálfsmyndir Rembrandts, Venus frá Urbínó eftir Tisian og Madonna með langa hálsinn eftir Parmigiano. Hiti og raki geta skemmt málverk. Kjörhitastigið fyrir varðveislu málverka er um 21 gráða og rakinn má ekki fara mikið yfir 55 prósent. Talið er að ef hitinn hækkar um einungis 4 gráður geti það stytt líftíma málverka um næstum helming. Safnstjórinn vill fullvissa fólk um að þrátt fyrir hitann á föstudaginn séu málverkin í toppstandi. Með því að loka snemma hafi verið hægt að létta álagið á loftræstingunni og bjarga listaverkunum.
Tengdar fréttir Íbúar í Evrópu búa sig undir mesta hita í um áratug Reiknað er með hitastig geti víða farið upp í 44 gráður. 4. ágúst 2017 13:55 Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sjá meira
Íbúar í Evrópu búa sig undir mesta hita í um áratug Reiknað er með hitastig geti víða farið upp í 44 gráður. 4. ágúst 2017 13:55