Mótmæla ákvörðun Macron að veita konu sinni starfstitil Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 8. ágúst 2017 21:08 Emmanuel Macron tók við embætti Frakklandsforseta í maí síðastliðinn. Vísir/AFP
Um 200 þúsund frakkar hafa skrifað undir undirskriftalista til að mótmæla ákvörðun Emmanuels Macron, forseta Frakklands, að stofna til embættis og starfstitils fyrir konu sína Brigitte Macron, sem gerir hana formlega að forsetafrú og veitir henni starfsskyldur sem falla undir titilinn. Brigitte myndi ekki fá laun fyrir starfið. Reuters greinir frá. Vilja margir meina að forsetinn sé að breyta embætti forsetahjónanna í átt að því sem þekkist Bandaríkjunum þar sem forsetafrúin gegnir ákveðnum skyldum og sinnir formlegu starfi forsetafrúarinnar. Franska forsetafrúin hefur hingað til ekki sinnt neinu ákveðnu hlutverki en þær hafa, í gegnum árin, tekið að sér að vera óformlegir stuðningsaðilar við ýmis málefni. Umræðan kemur í kjölfar þess að franska þingið, undir stjórn flokks Macrons En Marche, hefur komið fram með löggjöf sem bannar þingmönnum að nýta stöðu sína og veita skyldmennum sínum launuð störf á vegum ríkisins. Mótframbjóðandi Macrons í frönsku forsetakosningunum var til að mynda harðlega gagnrýndur eftir að upp komst að hann hafði greitt konu sinni fé úr ríkissjóði fyrir vinnu sem hún átti að hafa innt af hendi fyrir franska þingið; vinnu sem hún kom í raun ekki nálægt. „Það er verið að biðja meðlimi þingsins og ráðamenn að ráða ekki maka sína í vinnu en gera undantekningu fyrir konu Emannuels Macron. Þetta er þversögn,“ segir Thierry Paul Valette, sem stóð fyrir undirskriftasöfnuninni. Samkvæmt könnun sem Huffington Post gerði í maí eru 68 prósent frakka á móti því að veita forsetafrúnni formlegan starfstitil.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Fleiri fréttir Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sjá meira