Ítalska þingið leyst upp og kosið í mars Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2017 13:12 Paolo Gentiloni tók við embætti forsætisráðherra Ítalíu í desember á síðasta ári. Vísir/AFP
Sergio Mattarella, forseti Ítalíu, leysti í gær upp ítalska þingið og hefur verið boðað til kosninga þann 4. mars næstkomandi. Kannanir benda til að mjótt verði á munum milli fylkinga. Ríkisstjórn Paolo Gentiloni forsætisráðherra kom saman til fundar í gærkvöldi til að staðfesta kjördag. Segja má þar með hefjist kosningabarátta sem hefur þó í raun staðið í margar vikur þar sem vitað væri að gengið yrði til kosninga í vor. Kannanir benda til að engin fylking – hvorki bandalag flokka undir forystu Jafnaðarmannaflokksins PD, Fimm stjörnu hreyfingin eða bandalag hægriflokkanna Lega nord og Forza Italia – muni ná meirihluta á þingi. Allir flokkar hafa lofað því að skattar verði lækkaðir og þá er ljóst að innflytjendamálin verða mikið til umræðu. Gentiloni varði í gær árangur ríkisstjórnar sinnar og hét því að hann muni tryggja að ekki muni ríkja pólitískur óstöðugleiki í landinu þar til að ný ríkisstjórn tekur við völdum. „Við skulum heldur ekki ýkja hættuna á óstöðugleika, enda erum við orðin frekar bólusett gegn honum,“ sagði Gentolini. Alls hafa 64 ríkisstjórnar verið við völd á Ítalíu frá lokum seinna stríðs. Hinn 63 ára Gentiloni er leiðtogi Jafnaðarmanna. Reiknað er með að Matteo Renzi muni snúa aftur en hann lét af embætti forsætisráðherra í desember á síðasta ári eftir að honum mistókst að fá ný kosningalög samþykkt.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira