Læknar ráðþrota yfir 28 kílóa ungabarni Samúel Karl Ólason skrifar 11. nóvember 2017 20:48 Luis Manuel er nú mun stærri en þriggja ára bróðir hans. Vísir/AFP
Hinn tíu mánaða gamli Luis Manuel Gonzales er 28 kíló og enginn virðist geta útskýrt af hverju. Mögulega mun hann þurfa að ganga í gegnum dýra læknameðferð en foreldrar hans í Mexíkó hafa lítið á milli handanna. Offita og sykursýki barna er alvarleg vandamál í Mexíkó en þegar Luis Manuel fæddist var hann 3,5 kíló, eins og eldri bróðir sinn. Þegar hann varð tveggja mánaða var Luis Manuel orðinn tíu kíló og á átta mánuðum hefur hann bætt á sig átján kílóum til viðbótar. Eldri bróðirinn Mario er nú að verða þriggja ára en er mun minni en Luis Manuel sem getur hvorki gengið né skriðið.Samkvæmt AFP fréttaveitunni þykir flestum læknum sem hafa rannsakað hann líklegt að Luis Manuel þjáist af Prader-Willi heilkenninu. Það er genagalli sem felur í sér að börn hafa ávalt list á mat og slæma vöðvabyggingu. Hins vegar borðar Luis Manuel ekki mikið og er ekki mikið að biðja um mat.Heilkennið getur einnig valdið hjartagalla og hægt á þróun heila og kynfæra.Rándýr meðferð Upprunalega hélt móðir Luis Manuel að brjóstamjólk hennar hefði verið svo góð. Það hafi hins vegar fljótt komið í ljós að þetta væri ekki eðlilegt. Foreldrar hans skiptast á að fara með Luis Manuel á sjúkrahús þar sem hann þarf að fara í blóðprufu allt að fjórum sinnum á viku. En ekki eru allir læknar ráðþrota yfir ástandi Luis Manuel. Einn læknir sagði mögulegt að hann þyrfti að fá hormónasprautur sem kosti tæpar 60 þúsund krónur hver. Það er um þreföld mánaðarlaun föður Luis Manuel. Annar læknir sem skoðaði Luis Manuel nýverið, Silvia Orozco, sagði ástand hans vera lífshættulegt en mögulega væri tiltölulega auðvelt að bæta það. Hana grunar að í stað þess að Luis Manuel sé með Prader-Willi heilkennið sé vandamál hans að móðir hans hafi ekki fengið nægilega mikið af ákveðnum næringarefnum þegar hún var ólétt og því virki ákveðnir kirtlar sem stýri meltingu Luis Manuel ekki nægilega vel. Verið er að bíða eftir niðurstöðum rannsókna frá Bandaríkjunum og komi í ljós að Orozco hafi rétt fyrir sér munu lífslíkur Luis Manuel vera nokkuð góðar. Þær munu þó fela í sér mjög dýrar hormónasprautur.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Systir Haraldar er látin Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Sjá meira