Réttað í máli um fimm hundruð manna í Tyrklandi Atli Ísleifsson skrifar 1. ágúst 2017 14:48 Réttarhöldin fara fram í húsnæði fyrir utan Ankara og var sérstaklega byggt fyrir réttarhöldin. Vísir/AFP
Réttarhöld í máli nærri fimm hundruð manna hófust í Tyrklandi í dag. Fólkið er grunað um aðild að valdaránstilrauninni síðasta sumar, en í hópi sakborninga eru aðilar sem eru sakaðir um að hafa stýrt valdaránstilrauninni. Tyrkneska fréttastofan Anatolia segir frá því að fólkið sé sakað um að hafa stýrt valdaránstilrauninni frá Akinci-flugvellinum norðvestur af höfuðborginni Ankara. Er það ákært fyrir morð, morðtilraunar á forsetanum Recep Tayyip Erdogan og brot gegn stjórnarskránni. Flestir hinna ákærðu – 461 af 486 – eru í haldi lögreglu, sjö eru á flótta, en hinir hafa verið ákærðir en ganga lausir. Predikarinn Fethullah Gülen er einn þeirra sem hefur verið ákærður en hann hefur verið í sjálfskipaðri útlegð í Bandaríkjunum síðustu ár. Erdogan sakar Gülen um að vera höfuðpaur valdaránstilraunarinnar. Réttarhöldin fara fram í húsnæði fyrir utan Ankara og var sérstaklega byggt fyrir réttarhöldin. Hópur hermanna og fleiri manna reyndi að ná völdum í Tyrklandi í júlí á síðasta ári. Valdaránstilraunin fór hins vegar út um þúfur og létu alls 249 óbreyttir borgarar lífið í óeirðum á götum úti dagana þar í kring.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Innlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Erlent Fleiri fréttir „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Sjá meira