Ótrúlegar ellefu mínútur hjá gamla Man. United manninum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2017 09:45 Nick Powell á ferðinni með Manchester United. Vísir/Getty
Það muna kannski ekki margir eftir tíma Nick Powell hjá Manchester United en hann kom sér aftur inn í umræðuna í gær með frábærri innkomu. Nick Powell kom þá inná hjá liði sínu Wigan á 66. mínútu þegar liðið var 2-0 undir og þurfti nauðsynlega á stigum að halda í baráttunni fyrir lífi sínu í ensku b-deildinni. Powell skoraði þrjú mörk og Wifan vann 3-2 sigur á Barnsley. Liðið er nú með 40 stig og fjórum stigum frá öruggu sæti. Powell byrjaði á því að skora beint úr aukaspyrnu á 71. mínútu, fimm mínútum eftir að hann kom inná, jafnaði metin með skoti af stuttu færi á 72. mínútu og skoraði síðan sigurmarkið á 82. mínútu úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur. Þrenna á aðeins ellefu mínútum sem færði liðinu þrjú dýrmæt stig í fallbaráttu ensku b-deildarinnar. Þetta var í annað skiptið á stuttum tíma sem hann kemur inná sem varamaður og skorar sigurmark. Hann gerði það einnig í 3-2 sigri á Rotherham í leiknum á undan. Það var hans fyrsti deildarleikur síðan 2. janúar. Manchester United keypti Nick Powell sumarið 2012 fyrir allt að sex milljónir punda og hann skoraði í sínum fyrsta leik fyrir félagið í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa komið inná sem varamaður á móti einmitt Wigan. Sir Alex Ferguson var hrifinn og fór að tala um möguleikann á því að hann fyllti í skarð Paul Scholes. Powell var ennþá var átján ára og kominn til eins stærsta félags heims. Það var hinsvegar eina mark hans fyrir Manchester United og hann fékk á endanum frjálsa sölu síðasta sumar eftir að hafa farið á láni tímabilin á undan. Nick Powell fagnar eina marki sínu fyrir Manchester United sem kom strax í fyrsta leik.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Crystal Palace - Tottenham | Margir í banni hjá gestunum Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Sjá meira