Nær Arsenal að hefna ófaranna? | Myndband Dagur Lárusson skrifar 22. desember 2017 07:00
Nítjánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram um helgina en fyrsti leikur umferðarinnar er stórleikur Arsenal og Liverpool. Fyrri viðureign liðanna fór fram á Anfield í ágúst þar sem Liverpool tók Arsenal í kennslustund og vann leikinn 4-0. Arsene Wenger vill ólmur hefna ófaranna á Anfield með sigri en það verður þó hægara sagt en gert þar sem Liverpool hefur aðeins tapað tveimur leikjum á þessu tímabili í deildinni. Það hefur ekki gengið nógu vel hjá Arsenal upp á síðkastið en liðið gerði m.a. annars jafntefli við Southampton og West Ham í síðustu viku. Skytturnar náðu þó að krækja í þrjú stig gegn Newcastle í síðustu umferð og sitja nú í fimmta sæti deildarinnar með 33 stig. Síðasti leikur Liverpool var gegn Bournemouth síðastliðinn sunnudag þar sem þeir rauðklæddu skoruðu fjögur mörk framhjá lærisveinum Eddie Howe. Þetta var fyrsti sigur Liverpool í þremur leikjum en þar á undan hafði Liverpool gert jafntefli við Everton og West Brom. Bæði lið eru í mikilli baráttu um meistaradeildarsæti á þessari leiktíð og þess vegna má hvorugt liðið við því að tapa stigum en með sigri getur Arsenal komist yfir Liverpool, upp í fjórða sætið. Upphitunarmyndband fyrir þennan leik má sjá hér að ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Giroud líklega ekki með gegn Liverpool Olivier Giroud meiddist aftan í læri í gær og verður væntanlega ekki með þegar Arsenal mætir Liverpool á föstudag. 20. desember 2017 09:30 Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira
Giroud líklega ekki með gegn Liverpool Olivier Giroud meiddist aftan í læri í gær og verður væntanlega ekki með þegar Arsenal mætir Liverpool á föstudag. 20. desember 2017 09:30