Blackburn féll með lakari markatölu en Nottingham Forest Dagur Sveinn Dagbjartsson skrifar 7. maí 2017 12:41 Blackburn Rovers er fallið úr ensku Championship deildinni. vísir/getty
Botnbaráttan var í algleymingi í ensku Championship deildinni í fótbolta í dag. Fyrir leiki dagsins voru þrjú lið að berjast um fall, Birmingham, Nottingham Forest og Blackburn. Blackburn var í verstu stöðunni fyrir umferðina. Liðið sat í 22. sæti með 48 stig, jafnmörg stig og Nottingham Forest en Forest var með örlítið betra markahlutfall. Birmingham var tveimur stigum fyrir ofan Blackburn og Nottingham Forest. Nottingham Forest var eina liðið af þessum þremur sem átti heimaleik í dag. Liðið fékk Ipswich Town í heimsókn, á sama tíma og Blackburn heimsótti Brentford og Birmingham heimsótti Hörð Björgvin Magnússon og félaga hans í Bristol City. Svo fór að öll liðin þrjú unnu sína leiki. Blackburn vann Brentford 3-1, Nottingham Forest vann Ipswich 3-0 og Birmingham vann Bristol City 1-0. Það þýðir að Blackburn féll með lakari markatölu en Nottingham Forest. Framundan er úrslitakeppni um eitt laust sæti í ensku úrvalsdeildinni þar sem Reading mætir Fulham og Sheffield Wednesday mætir Huddersfield. Brighton og Newcastle höfðu þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Einn Íslendingur var í byrjunarliði sín liðs í leikjum dagsins. Aron Einar Gunnarsson var á sínum stað í byrjunarliði Cardiff City sem gerði góða ferð til Huddersfield og vann 3-0 sigur. Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður hjá Wolves sem vann Preston 1-0 á heimavelli. Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Fulham, Hörður Björgvin var ekki í leikmannahópi Bristol City og Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahópi Aston Villa vegna meiðsla. Úrslit dagsins: Aston Villa 1-1 Brighton Brentford 1-3 Blackburn Bristol City 0-1 Birmingham Burton 2-4 Reading Huddersfield 0-3 Cardiff Newcastle 3-0 Barnsley Norwich 4-0 QPR Nottingham Forest 3-0 Ipswich Rotherham 1-1 Derby Sheff. Wednesday 1-2 Fulham Wigan 1-1 Leeds Wolves 1-0 Preston
Enski boltinn Mest lesið Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Íslenski boltinn Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Enski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Chelsea - Brighton 4-3 | Dramatískur markaleikur á brúnni Enski boltinn FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Valur - ÍA | Helda Skagamenn sér í efri hlutanum? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Chelsea - Brighton 4-3 | Dramatískur markaleikur á brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Sjá meira