Ógnaröld í Ríó Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 23. júlí 2017 22:36 Í kringum níutíu lögreglumenn hafa fallið í átökum við glæpagengi. Vísir/AFP
Á fimmtíu og fjögurra klukkustunda fresti er lögregluþjónn myrtur í Rio de Janeiro. Vinir og ættingjar lögreglumanna í Rio de Janeiro fjölmenntu í mótmælagöngu eftir að enn einn lögreglumaðurinn lét lífið í átökum við glæpagengi. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Hundruð gengu fylktu liði meðfram Copacabana-ströndinni og kröfðust aukins stuðnings til handa lögreglunni og almenningi. Níutíu lögreglumenn hafa látist í átökum við glæpagengi í Rio de Janeiro það sem af er árinu. Það er mun meira en heildarfjöldi látinna lögreglumanna árið 2016. „Ég er full örvæntingar því eiginmaðurinn minn gæti orðið næstur,“ segir Rogeria Quaresma sem tók þátt í kröfugöngunni. Hún bætir auk þess við að það sé daglegt brauð að fjölskyldur leysist upp. Quaresma segist ekki taka það í mál að verða næsta ekkja. Í síðustu viku tilkynntu brasilísk yfirvöld að þau myndu senda þúsund ríkislögreglumenn til þess að styrkja staðbundna löggæslu í Rio de Janeiro. Fjölskyldur og vinir lögreglumanna segja að lögreglumenn í landinu skorti bæði heimildir og búnað til að stemma stigu við glæpaöldunni. Þá er þess einnig krafist að breytingar verði gerðar á almennum hegningarlögum. Þess er óskað að refsingin fyrir lögreglumorð verði þyngd. Í skýrslu frá Amnesty International er komið á framfæri áhyggjum af tíðni dauðsfalla í aðgerðum lögreglunnar. Meira en átta hundruð manns voru drepnir í Rio de Janeiro árið 2016.Fjölskyldur lögreglumanna í Brasilíu fjölmenntu í mótmælagöngu.Vísir/AFP
Mest lesið Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Sjá meira