„Sláandi að árið 2017 sé Manchester United ekki með kvennalið“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. júní 2017 08:00 Fá konur að spila á Old Trafford í framtíðinni? vísir/getty „
Mér finnst það sláandi að árið 2017 sé félag á stærð við Manchester United ekki með kvennalið. Það sem er enn þá verra er að það er ekki einu sinni að skoða möguleikann á því almennilega.“ Svona hefst pistill Rachel Brown-Finnis, fyrrverandi landsliðsmarkverði Englands og sérfræðingi BBC, um þá staðreynd að stærsta félag Englands og eitt það stærsta í heiminum sé ekki með fótboltalið fyrir konur. Brown-Finnis bendir á það að flest stærstu félög heims séu með kvennalið eða eru að setja slíkt lið á laggirnar. Real Madrid og Juventus, liðin sem léku til úrslita í Meistaradeildinni, eru bæði að byrja með kvennalið. Þá þarf Manchester United ekki að horfa lengra en nokkra kílómetra frá Old Trafford þar sem Manchester City er búið að setja upp eitt besta kvennalið Evrópu. City gerir mikið úr kvennaliði sínu sem hefur náð langt á skömmum tíma. „Hvort sem United horfir innanlands eða út fyrir landsteinanna þegar það er að bera sig saman við önnur félög sér það að það er að verða eftir á. Ég skil bara ekki hvers vegna,“ segir Brown-Finnis. „Þegar fólk hefur talað um þetta áður hefur verið spurt hvernig eigi að gera þetta. Félag sem er svona stórt myndi svo sannarlega hjálpa til við að þróa kvennafótboltann.“ „United er að missa af auðveldri leið til að styrkja tengslin enn frekar við allar konurnar sem elska félagið og það sem skiptir máli er það að félagið er ekki að stuðla að mikilvægi kvenna hjá sér. Kvennalið myndi gera allt þetta fyrir Manchester United. Þetta yrði stór og góð eign sem kostar ekki mikið. Hvers vegna hugsar United öðruvísi en önnur lið? segir Rachel Brown-Finnis. Í svari við fyrirspurn BBC segist United vera að skoða málin en kvennaliðið þar var lagt af árið 2005 af Glazer-feðgum sem höfðu engan áhuga á því að vera með slíkt lið. United er með frábæra yngri flokka fyrir stelpur upp að 16 ára aldri en eftir það verða þær að leita annað.Allan pistilinn má lesa hér.
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Chelsea - Brighton | Welbeck fær gamla félagið í heimsókn Enski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Chelsea - Brighton | Welbeck fær gamla félagið í heimsókn Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira