Antonov skipaður nýr sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2017 13:39 Anatoli Antonov er aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Vísir/AFP
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur skipað Anatoli Antonov aðstoðarutanríkisráðherra sem nýjan sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum. Antonov tekur við stöðunni af Sergei Kislyak sem hefur verið mikið í umræðunni á árinu vegna tengsla ráðgjafa Donald Trump Bandaríkjaforseta og fulltrúa rússneskra stjórnvalda. Skipunin þykir nokkuð ögrandi þar sem Antonov er að finna á lista Evrópuríkja yfir þá Rússa sem hafa verið beittir viðskiptaþvingunum vegna aðkomu rússneskra hersveita að deilunni í austurhluta Úkraínu. Reuters greinir frá þessu. Kislyak tók við embætti sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum árið 2008. Fáeinum vikum eftir embættistöku Trump þurfti þjóðaröryggisráðgjafinn Michael Flynn að segja af sér eftir að hann hafði logið til um samskipti sín við Kislyak. Dómsmálaráðherrann og fyrrverandi öldungadeildarþingmaðurinn Jeff Sessions átti sömuleiðis fundi með Kislyak og ákvað hann í vor að segja sig frá rannsókn á aðkomu Rússa að forsetakosningunum. Þá fundaði einnig Jared Kushner, tengdasonur og ráðgjafi Trump, með Kislyak fyrir valdaskiptin í Washington í janúar. Rússnesk stjórnvöld hafa neitað að hafa átt afskipti af bandarísku forsetakosningunum.
Tengdar fréttir Rússneski sendiherrann yfirgefur Washington Sergei Kislyak hefur mikið verið í umræðunni á árinu vegna tengsla ráðgjafa Donald Trump Bandaríkjaforseta og fulltrúa rússneskra stjórnvalda. 23. júlí 2017 11:03 Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Rússneski sendiherrann yfirgefur Washington Sergei Kislyak hefur mikið verið í umræðunni á árinu vegna tengsla ráðgjafa Donald Trump Bandaríkjaforseta og fulltrúa rússneskra stjórnvalda. 23. júlí 2017 11:03