MI5 hefur rannsókn á mistökunum: Kennarar og trúarleiðtogar höfðu varað við Abedi Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 28. maí 2017 22:18 Lögregla stendur vörð í Manchester. Vísir/afp
Breska leyniþjónustan MI5 hefur hafið tvær rannsóknir á því hvernig viðvaranir sem bárust um hryðjuverkamanninn Salman Abedi, sem varð 22 að bana í sprengjuárás í Manchester mánudaginn 22. maí síðastliðinn, fór fram hjá henni. Þá höfðu kennarar hans sem og trúarleiðtogar látið í ljós áhyggjur sínar af ástandi Abedi og hugsjónum hans yfir nokkra ára tímabil. Þetta kemur fram inn á vef Guardian. Leyniþjónustan hefur undanfarið verið gagnrýnd fyrir að sinna ekki ábendingum nógu vel og einn meðlimur þingsins hefur meðal annars velt fyrir sér hvort leyniþjónustan sé nógu hæf til að sinna verkefnum á sínu borði. Skortur á mannafli og fjárhag undanfarin misseri kunna að hafa áhrif á stöðuna.Ólíkar rannsóknir Fyrri rannsóknin, sem er á vegum varnarmálaráðuneytisis og hófst strax í síðustu viku, var ansi takmörkuð þar sem áhersla var á að finna árásarmanninn og komast að því um hvernig sprengju væri að ræða. Seinni rannsóknin mun kafa dýpra í málið og skoðað verður hvernig ákvarðanir um Abedi voru teknar fyrir árásina; það er að segja hvernig viðvaranir fóru fram hjá yfirvöldum. Farið verður í gegnum alla ferla og þau kerfi er ákvarða hverjir teljist til hættulegra einstaklinga og hverjir ekki. Allt verður því endurskoðað. Með þessu verður reynt að komast að því hvort að teknar hefðu verið aðrar ákvarðanir í ljósi þeirra upplýsinga sem yfirvöld höfðu um Abedi.Ekki undir stöðugu eftirliti Leyniþjónustan vissi af Abedi en taldi hann ekki vera einn af þeim sem þyrfti að hafa sérstakar áhyggjur af. Hann var því ekki einn af þeim sem eru undir stöðugu eftirliti. Talið er að Abedi, sem er af líbískum ættum, hafi hlotið þjálfun í skipulagningu hryðjuverka. Abedi hafði verið staddur í Líbíu nokkrum dögum fyrir árásina.Teygir anga sína inn í stjórnmálin Amber Rudd, núverandi varnarmálaráðherra, hefur hingað til ekki viljað svara spurningum um það hvers vegna viðvaranir hafi fallið milli skips og bryggju. Hún telur þó mikilvægt að skoða málin og tryggja öryggi fólks. Nú þegar er búið að handtaka fimmtán manns í tengslum við málið. Þrettán þeirra eru enn i haldi. Rudd staðfesti einnig að menn sem grunaðir eru um tengsl við hryðjuverkasamtök hefur einnig verið neitað um inngöngu inn í Bretland. Eins og við var að búast hefur árásin teygt angan sína inn á svið stjórnmálanna og hefur Rudd látið hafa eftir sér að ef Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, verði forsætisráðherra munu hryðjuverkamenn eiga greiðari leið inn í landið og þar með auka umsvif sín. Rudd sakaði Corbyn einnig um að hafa talað gegn ráðstöfunum til að koma í veg fyrir fleiri árásir. Diane Abbott í Verkamannasflokknum svaraði Rudd hins vegar og benti á að núverandi ríkisstjórn yrði að bíta í það súra epli að undirfjármögnun ýmissa stofnanna á borð við leyniþjónustunnar gætu haft afleiðingar sem þessar.
Tengdar fréttir Ariana Grande með skilaboð til aðdáenda: "Hatrið má ekki sigra“ Bandaríska sönkonan Ariana Grande hyllir aðdáendur sína í skilaboðum sem hún birti á Twitter síðdegis í dag. 26. maí 2017 18:27 Lögreglan birtir myndir af Abedi úr öryggismyndavélum Breska lögreglan hefur birt myndir af Abedi úr öryggismyndavélum. 27. maí 2017 21:23 Lögregla í Manchester lokar á Bandaríkin Lögregluyfirvöld í Manchester hafa hætt að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um rannsókn hryðjuverkaárásarinnar þar í borg eftir að þeim var lekið í fjölmiðla. 25. maí 2017 09:45 Árásarmaðurinn í Manchester sagður ótrúlega heilaþveginn Salman Abedi, maðurinn sem myrti 22 gesti á leið út af tónleikum Ariönu Grande í Manchester í vikunni, virtist ekki hafa neitt illt í hyggju þegar líbískur kunningi hans hitti hann fyrir tæpum mánuði. 25. maí 2017 07:00 Sprengjusveit ræst út í Manchester Sprengjusveit hefur verið send á vettvang vegna grunsamlegs pakka. Engin hætta virðist lengur á ferðum. 25. maí 2017 10:39 Árásin í Manchester: Tveir ungir menn handteknir Tveir karlmenn voru handteknir í nótt í tengslum við hryðjuverkaárásina í Manchester á mánudaginn síðastliðinn. Alls eru ellefu einstaklingar í haldi lögreglu vegna árásarinnar 27. maí 2017 10:04 Viðbúnaðarstig lækkað í Bretlandi Viðbúnaðarstig í Bretlandi hefur verið lækkað að nýju eftir að hafa verið sett á hæsta stig í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar í Manchester á mánudaginn síðastliðinn. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti þetta í morgun. 27. maí 2017 12:46 Ný handtaka í Manchester Vopnaðir lögregluþjónar gerðu áhlaup á íbúðarhús í Moss Side í Manchester í dag. Þá var 25 ára gamall maður handtekinn í Old Trafford, svæði suðvestan við miðborg Manchester, í dag. 28. maí 2017 15:59 Trump segir rannsókn á upplýsingalekanum nauðsynlega Bresk yfirvöld tóku ákvörðun um að stöðva upplýsingaflæði á milli landanna tveggja í ljósi þessa leka og hefur Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, lagt áherslu á að allar upplýsingar sem deilt sé á milli landanna tveggja verði að vera tryggðar og öruggar til að samstarfið gangi upp. 25. maí 2017 17:51 Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Sjá meira
Ariana Grande með skilaboð til aðdáenda: "Hatrið má ekki sigra“ Bandaríska sönkonan Ariana Grande hyllir aðdáendur sína í skilaboðum sem hún birti á Twitter síðdegis í dag. 26. maí 2017 18:27
Lögreglan birtir myndir af Abedi úr öryggismyndavélum Breska lögreglan hefur birt myndir af Abedi úr öryggismyndavélum. 27. maí 2017 21:23
Lögregla í Manchester lokar á Bandaríkin Lögregluyfirvöld í Manchester hafa hætt að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um rannsókn hryðjuverkaárásarinnar þar í borg eftir að þeim var lekið í fjölmiðla. 25. maí 2017 09:45
Árásarmaðurinn í Manchester sagður ótrúlega heilaþveginn Salman Abedi, maðurinn sem myrti 22 gesti á leið út af tónleikum Ariönu Grande í Manchester í vikunni, virtist ekki hafa neitt illt í hyggju þegar líbískur kunningi hans hitti hann fyrir tæpum mánuði. 25. maí 2017 07:00
Sprengjusveit ræst út í Manchester Sprengjusveit hefur verið send á vettvang vegna grunsamlegs pakka. Engin hætta virðist lengur á ferðum. 25. maí 2017 10:39
Árásin í Manchester: Tveir ungir menn handteknir Tveir karlmenn voru handteknir í nótt í tengslum við hryðjuverkaárásina í Manchester á mánudaginn síðastliðinn. Alls eru ellefu einstaklingar í haldi lögreglu vegna árásarinnar 27. maí 2017 10:04
Viðbúnaðarstig lækkað í Bretlandi Viðbúnaðarstig í Bretlandi hefur verið lækkað að nýju eftir að hafa verið sett á hæsta stig í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar í Manchester á mánudaginn síðastliðinn. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti þetta í morgun. 27. maí 2017 12:46
Ný handtaka í Manchester Vopnaðir lögregluþjónar gerðu áhlaup á íbúðarhús í Moss Side í Manchester í dag. Þá var 25 ára gamall maður handtekinn í Old Trafford, svæði suðvestan við miðborg Manchester, í dag. 28. maí 2017 15:59
Trump segir rannsókn á upplýsingalekanum nauðsynlega Bresk yfirvöld tóku ákvörðun um að stöðva upplýsingaflæði á milli landanna tveggja í ljósi þessa leka og hefur Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, lagt áherslu á að allar upplýsingar sem deilt sé á milli landanna tveggja verði að vera tryggðar og öruggar til að samstarfið gangi upp. 25. maí 2017 17:51