Höddi Magg um glórulausan dómara í úrslitaleik Copa América: "Takiði flautuna af þessum manni“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júní 2016 11:30 Lopes var í aðalhlutverki í leiknum í New Jersey í nótt. vísir/getty
Brasilíski dómarinn Heber Roberto Lopes stal senunni í úrslitaleik Argentínu og Síle í Copa América í nótt. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma né framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Þar skoruðu Sílemenn úr fjórum spyrnum en Argentínumenn aðeins úr tveimur. Lionel Messi skaut yfir úr sinni spyrnu og tilkynnti eftir leikinn að hann væri hættur í landsliðinu. Messi fann sig ekki í úrslitaleiknum en hann fékk að líta gula spjaldið fyrir leikaraskap á 40. mínútu hjá spjaldaglöðum Lopes. Afar hæpinn dómur. Brasilíumaðurinn virkaði æstur og í litlu jafnvægi allt frá upphafsflautinu og öll líkamstjáning hans var furðuleg.Heber Lopes er ekki spar á spjöldin eins og sjá á þessu skilti.mynd/skjáskot af soccerway.comLopes lyfti gula spjaldinu alls fimm sinnum í fyrri hálfleik en Sílemaðurinn Marcelo Díaz fékk tvö þeirra fyrir brot á Messi. Tveimur mínútum fyrir hálfleik sendi Lopes Argentínumanninn Marcos Rojo svo í sturtu fyrir brot á Arturo Vidal. Bæði lið léku því einum færri í seinni hálfleik og framlengingunni. Þegar litið er yfir síðustu leiki hjá þessum 43 ára gamla Brasilíumanni þarf spjaldagleðin í nótt ekki að koma á óvart en hann hefur lyft rauða spjaldinu 14 sinnum í síðustu 27 leikjum sem hann hefur dæmt. Hörður Magnússon, sem lýsti leiknum á Stöð 2 Sport í nótt, var steinhissa á frammistöðu Lopes og eftir að hann rak Rojo af velli hrópaði Hörður: „Takiði flautuna af þessum dómara!“Bæði rauðu spjöldin má sjá hér að neðan, það seinna í lýsingu Hödda Magg.Díaz fær sitt annað gula spjald Rojo sendur í sturtu
Fótbolti Mest lesið Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Enski boltinn Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn Ferguson fluttur á spítala Enski boltinn ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Íslenski boltinn Betur fór en á horfðist þegar bíll endaði í á Sport „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Íslenski boltinn Tottenham kom sér upp úr fallsæti Enski boltinn Fleiri fréttir „Sem betur fer slapp þetta“ „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Ísak og Sverrir fengu báðir heilahristing „Ekki í fyrsta sinn sem við komum til baka á þessum velli“ „Eigum að díla betur við svona stöður“ Inter er Ítalíumeistari „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Tottenham kom sér upp úr fallsæti Sjáðu markmann leggja upp mark gegn liði Kristians Glódís Perla úr leik í Meistaradeildinni Daníel Freyr lagði upp í sigri gegn Viktori Bjarka Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum Ferguson fluttur á spítala Mark Hákonar dugði skammt Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Isak aftur meiddur Eyjakonan lagði Sveindísi Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ Sjá meira