Arnar: Reikna frekar með því að vera áfram Ingvi Þór Sæmundsson á Kópavogsvelli skrifar 1. október 2016 16:33 Arnar og lærisveinar hans enduðu tímabilið í 6. sæti Pepsi-deildar karla. vísir/stefán
Breiðablik missti af Evrópusæti og féll alla leið niður í 6. sæti Pepsi-deildar karla er liðið tapaði 0-3 fyrir Fjölni á heimavelli í lokaumferðinni í dag. Blikar voru sjálfum sér verstir í leiknum en þeir fóru illa með færin sín sem reyndist dýrkeypt á endanum. „Fyrri hálfleikurinn var jafn. Við vorum ívið meira með boltann en sköpuðum ekki nógu hættuleg færi. Svo höfðum við algjöra yfirburði í seinni hálfleik og fengum 3-4 dauðafæri sem við nýttum ekki,“ sagði Arnar eftir leikinn í dag. „0-0 er hættuleg staða. Fjölnir er með gott sóknarlið og við gleymdum okkur þegar þeir skoruðu fyrsta markið. Svo misstu menn hausinn, við vissum að við þyrftum að vinna og það skipti ekki máli hvort við töpuðum 1-0 eða 3-0. Þetta er blóðugt.“ Blikar enduðu sem áður sagði í 6. sæti sem Arnar viðurkennir að séu mikil vonbrigði. „Við ætluðum að keppa á toppnum þannig að þetta eru klárlega mikil vonbrigði. En þegar menn nýta ekki færin sín erum við ekki nógu góðir,“ sagði þjálfarinn. Arnar á eitt ár eftir af samningi sínum við Breiðablik og segir líklegra en ekki að hann verði áfram við stjórnvölinn hjá liðinu á næsta ári. „Það verður að koma í ljós, ég á ár eftir að samningnum. Ég geri frekar ráð fyrir því að vera áfram,“ sagði Arnar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sprungu úr hlátri þegar stóllinn hans Alberts gaf sig: „Ragnar Reykás er mættur“ Fótbolti Markalaust á Etihad Fótbolti Úkraínski heimsmeistarinn handtekinn á flugvelli Sport Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Körfubolti Ný sönnunargögn gætu hjálpað Chiles að endurheimta bronsið Sport Salvatore Schillaci látinn Fótbolti Muna vel leikinn við Liverpool fyrir 60 árum Fótbolti Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Enski boltinn „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Íslenski boltinn Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Körfubolti Fleiri fréttir Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Keflavík í góðri stöðu „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Vals og Víkings Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Lárus Orri ekki enn búinn að fyrirgefa Graham Potter: „Hann var svolítið linur“ Rúnar Páll: Fáránlega mikið af mörkum á okkur sem boðar ekki gott Aron: Að það þurfi tæklingu til þess að kveikja á liðinu finnst mér lélegt „Þetta er fokking Valur-KR og ef menn fá ekki að kljást í þeim leik þá er eitthvað að“ Arnar: Hleyptum þeim sjaldan úr skotgröfunum Uppgjörið: Valur - KR 4-1 | Valsarar sleppa ekki takinu á Vesturbæingum Uppgjörið: Fylkir - Víkingur- 0-6 | Miskunnarlausir Víkingar á toppnum Laus við veikindin og klár í slaginn Sjáðu markaflóðið úr Bestu deild karla í gær „Það er ekki öllum sem finnst þetta skemmtilegt“ „Gífurlega svekkjandi augnablik“ „Held það vilji það allir sem fylgjast með boltanum“ Uppgjörið: Breiðablik - HK 5-3 | Blikar völtuðu yfir nágrannana í síðari hálfleik Heimir: Þetta víti var brandari Davíð Smári: Ekkert verra en að fá þetta í andlitið Uppgjörið: Fram - FH 3-3 | Fram náði stigi í lokin í markaleik á móti FH Jökull: „Gátum verið þakklátir fyrir 0-0 í hálfleik“ Uppgjörið: Stjarnan - Vestri 1-0 | Emil bjargaði Stjörnunni í bragðdaufum leik Uppgjörið: ÍA - KA 1-0 | Fyrsta mark Rúnars Más tryggði Skagamönnum sigur Sérstakir leikir sama hvað er undir: „Alltaf smá auka fiðringur“ Sjá meira