Litli drengurinn í Ohio kominn til frænku sinnar í Kaliforníu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. september 2016 15:42 Myndirnar sem birtar voru en búið er að gera andlit barnsins óþekkjanlegt.
Fjögurra ára drengur sem myndaður var í smábænum East Liverpool í Ohio í síðustu viku þar sem hann sat í aftursæti bíls með ömmu sinni og manni sem bæði voru meðvitundarlaus vegna heróínneyslu er kominn í umsjá frænku sinnar og frænda í Kaliforníu. Drengurinn var á forræði ömmu sinnar sem var með hann í bílnum en hún er nú í fangelsi og hefur verið kærð fyrir að stofna lífi barns í hættu og að vera undir áhrifum fíkniefna á almannafæri. Amman hafði fengið forræði yfir honum aðeins sex vikum áður en hún var handtekin í liðinni viku. Maðurinn sem var með drengnum og ömmu hans í bílnum var við stýrið og var nálægt því að keyra á skólabíl rétt áður en lögreglan kom á staðinn og tók myndir sem síðan voru settar á Facebook-síðu lögregluyfirvalda í East Liverpool. Myndbirtingin vakti hörð viðbrögð enda var andlit drengsins ekki „blörrað“, og reyndar andlit fullorðna fólksins ekki heldur. Lögreglan sagði myndina birta til þess að varpa ljósi á umfangsmikinn fíkniefndavanda í Ohio en yfir þrjú þúsund manns létu lífið af völdum of stórs skammts á síðasta ári. Vildu yfirvöld í ríkinu því senda skilaboð til að upplýsa hve stórt vandamálið er. Ekki eru þó allir sáttir við það að myndin skuli hafa verið birt með þessum hætti, ekki síst drengsins vegna. „Yfirvöld í East Liverpool niðurlögðu fjölskylduna mína og niðurlögðu þennan litla dreng,“ segir ömmusystir stráksins í samtali við NBC. „Þeir hefðu getað „blörrað“ andlitið hans en þeir gerðu það ekki og núna eru þeir að taka hann af systur minni. Ég ætla ekki að réttlæta það sem hún gerði en það sem þeir gerðu henni og barnabarni hennar er of mikið.“
Tengdar fréttir Réttlæta birtingu mynda af heróínfíklum og fjögurra ára barni "Þú verður pirraður af því þú ert alltaf að glíma við sama fólkið, sama vandamálið og þau eiga öll börn og hafa engar áhyggjur af börnunum sínum,“ segir lögreglustjórinn í East Liverpool. 11. september 2016 23:48 Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Erlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent Erik Menendez fær ekki reynslulausn Erlent Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Erlent Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Innlent Áfall fyrir RIFF Innlent Fleiri fréttir Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Sjá meira
Réttlæta birtingu mynda af heróínfíklum og fjögurra ára barni "Þú verður pirraður af því þú ert alltaf að glíma við sama fólkið, sama vandamálið og þau eiga öll börn og hafa engar áhyggjur af börnunum sínum,“ segir lögreglustjórinn í East Liverpool. 11. september 2016 23:48