Vidal sendur heim | Mætti fullur á æfingu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. september 2015 19:00 Vidal yfirgaf síleska landsliðshópinn í vikunni. vísir/getty
Samkvæmt síleskum fjölmiðlun mætti Arturo Vidal, leikmaður Bayern München, undir áhrifum áfengis til æfinga hjá sílenska landsliðinu á þriðjudagsmorgun. Vidal var ekki í ástandi til að æfa og Jorge Sampaoli, landsliðsþjálfari Síle, sendi hann upp á herbergi til að sofa vímuna úr sér. Þegar Vidal kom svo í mötuneyti landsliðsins um miðjan daginn sagði Sampaoli að hann væri á síðasta séns og sendi leikmanninn aftur til Þýskalands. Vidal missir því af vináttulandsleik Síle og Paragvæ á morgun.Vidal komst sem frægt er í fréttirnir í sumar þegar hann stórskemmdi Ferrari-bíl sinn eftir að hafa keyrt undir áhrifum áfengis. Vidal baðst afsökunar á atvikinu og hélt sæti sínu í landsliðshópnum. Hann átti svo stóran þátt í sigri Síle í Suður-Ameríkukeppninni en Vidal skoraði þrjú mörk í fimm leikjum á mótinu. Vidal þvertók fyrir að nokkuð misjafnt hefði átt sér stað á þriðjudaginn og sagði að hann hefði fengið leyfi hjá Sampaoli til að fara aftur til Þýskalands. Hann ásakaði jafnframt fjölmiðla um að reyna að sverta ímynd sína. Vidal gekk til liðs við Bayern frá Juventus í sumar eftir fjögurra ára dvöl á Ítalíu. Hann lék áður í Þýskalandi með Bayer Leverkusen á árunum 2007-11.Vidal var tárvotur þegar hann baðst afsökunar á ölvunarakstrinum í sumar.vísir/getty
Fótbolti Tengdar fréttir Vidal búinn að semja við Bayern Hinn magnaði landsliðsmaður Síle, Arturo Vidal, skrifaði í dag undir samning við FC Bayern München. 28. júlí 2015 14:30 Vidal sviptur ökuleyfi í tvö ár Sílemaðurinn var handtekinn fyrir ölvunarakstur í miðri Suður-Ameríkukeppninni. 8. júlí 2015 23:00 Síle Suður-Ameríkumeistari í fyrsta skipti Síle er Suður-Ameríkumeistari í knattspyrnu eftir sigur á Argentínu í úrslitaleik. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. 4. júlí 2015 22:45 Stjörnuleikmaður Síle handtekinn í miðri Suður-Ameríkukeppni Arturo Vidal, miðjumaður Juventus og Síle, átti ekki góðan dag í gær en hann endaði með því að þessi snjalli leikmaður var fluttur í burtu í lögreglubíl. 17. júní 2015 13:00 Vidal fær að spila áfram þrátt fyrir ölvunarakstur Grét á blaðamannafundi þegar hann baðst afsökunar á því að hafa klessukeyrt Ferrari-bifreið sína. 18. júní 2015 08:58 Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Fleiri fréttir Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Benfica staðfestir að Mourinho taki við Real Madrid „Þessi leikur er gleymdur og grafinn“ Einkunnir íslensku stelpnanna: Linda kom með smá líf í seinni Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Stelpurnar hennar Betu unnu stórt en ekki nógu stórt Atlético hafnaði risatilboði Real Madrid Tvær koma inn fyrir leikinn á móti heimsmeisturunum Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ „Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll“ Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins „Það væri ógeðslega gaman að ná að vinna Spánverjana“ „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Með áhyggjur af að mæta Íslandi en Messi mun spila Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Sjá meira
Vidal búinn að semja við Bayern Hinn magnaði landsliðsmaður Síle, Arturo Vidal, skrifaði í dag undir samning við FC Bayern München. 28. júlí 2015 14:30
Vidal sviptur ökuleyfi í tvö ár Sílemaðurinn var handtekinn fyrir ölvunarakstur í miðri Suður-Ameríkukeppninni. 8. júlí 2015 23:00
Síle Suður-Ameríkumeistari í fyrsta skipti Síle er Suður-Ameríkumeistari í knattspyrnu eftir sigur á Argentínu í úrslitaleik. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. 4. júlí 2015 22:45
Stjörnuleikmaður Síle handtekinn í miðri Suður-Ameríkukeppni Arturo Vidal, miðjumaður Juventus og Síle, átti ekki góðan dag í gær en hann endaði með því að þessi snjalli leikmaður var fluttur í burtu í lögreglubíl. 17. júní 2015 13:00
Vidal fær að spila áfram þrátt fyrir ölvunarakstur Grét á blaðamannafundi þegar hann baðst afsökunar á því að hafa klessukeyrt Ferrari-bifreið sína. 18. júní 2015 08:58