Sigurmark Benteke var ólöglegt og átti aldrei að standa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2015 21:21 Christian Benteke skorar hér markið sitt. Vísir/Getty
Christian Benteke tryggði Liverpool 1-0 sigur á Bournemouth í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á mánudagskvöldið en markið átti aldrei að standa. Enska úrvalsdeildin gaf í dag frá sér yfirlýsingu um að það hafi verið mistök að dæma sigurmark Benteke gott og gilt. Christian Benteke var ekki rangstæður en það var hinsvegar liðsfélagi hans Philippe Coutinho sem hafði augljóslega áhrif á það sem gerðist þegar Jordan Henderson gaf boltann fyrir. Coutinho kom ekki við boltann en truflaði markmann Bournemouth-liðsins með því að teygja sig í boltann. Það er hægt að sjá markið hér fyrir neðan. Rangstöðureglunni var aðeins breytt í sumar hvað það varðar að leggja meiri áherslu á að leikmenn geta verið rangstæðir og haft áhrif á gang leiksins þrátt fyrir að þeir komi ekki við boltann. Eddie Howe, knattspyrnustjóri Bournemouth, hafði samband við dómarasamtökin í Englandi eftir tapið í Liverpool og óskaði eftir skýringu á reglunni um hvenær leikmaður hefur áhrif á leikinn. Enska úrvalsdeildin hefur nú brugðist við því með því að senda öllum félögum útskýringu á því hvenær leikmenn sem snerta ekki boltann eru rangstæður og hvenær ekki. Þar kemur meðal annars fram að leikmaður sem snertir ekki boltann er alltaf rangstæður ef hann reynir augljóslega að komast í boltann sem er nálægt honum og truflar með því mótherja eða þá ef hann truflar aðgengi mótherja að knettinum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Benteke hetja Liverpool gegn nýliðunum | Sjáðu markið Christian Benteke tryggði Liverpool sigur á Bournemouth með sínu fyrsta marki fyrir félagið í keppnisleik. 17. ágúst 2015 20:45 Mest lesið Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Formúla 1 Fann liðsfélaga sinn látinn Sport Littler sættist við áhorfendur í salnum Sport Strákurinn fékk VAR í jólagjöf Enski boltinn Berst við krabbamein Fótbolti „Hann verður alltaf númer eitt“ Sport Giftu sig á gamlársdag Handbolti Sumir hneykslast á hegðun heimsmeistarans Sport Ungur leikmaður Metz slasaðist í sprengingunni Fótbolti Færir sig um set í Lundúnum Enski boltinn Fleiri fréttir Segja að Liverpool líti á Harvey Elliott sem vandamál Aston Villa Amorim segir að engar viðræður séu í gangi Losnar Sterling úr frystikistunni hjá Chelsea? Brennan Johnson er orðinn leikmaður Crystal Palace „Þú færð ekkert fyrir að vera heiðarlegur“ „Bara plástur á sár, hann mun ekki vera þarna í mörg ár“ Ungur varnarmaður sagður á leið til Liverpool Sjáðu mörkin sem voru skoruð á nýársdag Færir sig um set í Lundúnum Skilur baulið hjá stuðningsmönnum vel Strákurinn fékk VAR í jólagjöf Sunderland hjálpaði Arsenal með því að taka stig af Man. City „Mjög svekkjandi“ Líklegast að Chelsea ráði stjóra Strassborg Fyrsta mark Mateta í langan tíma dugði ekki Palace til að taka öll stigin Bitlausir meistarar byrjuðu árið á því að tapa stigum á heimavelli Arsenal græddi á mistökum dómarans í 1-0 sigrinum á Everton Sjáðu Mateta skora fyrsta mark ársins 2026 Biðin mikla hjá Unai Emery tók aðeins nokkrar sekúndur Tók báða Íslendingana út af í hálfleik „Ekki jólin sem ég bjóst við“ Andri Lucas missti af þriðja leiknum í röð og áfram markaleysi án hans Aganefndin í fríi og Romero fær að spila í dag Chelsea búið að reka Enzo Maresca Slá því upp að Maresca gæti verið rekinn frá Chelsea í dag Hvað á Liverpool að gera með Mo Salah og Alexander Isak? Sjáðu allt það besta úr enska boltanum á árinu 2025 Alls ekki síðasti leikur Semenyo Segir dómarana bara hafa verið að giska Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Sjá meira
Benteke hetja Liverpool gegn nýliðunum | Sjáðu markið Christian Benteke tryggði Liverpool sigur á Bournemouth með sínu fyrsta marki fyrir félagið í keppnisleik. 17. ágúst 2015 20:45