Verktakar deila við Akureyrarbæ Samúel Karl Ólason skrifar 14. apríl 2015 11:54 Frá Akureyri. Vísir/Pjetur
Framkvæmdastjórar nokkurra verktakafyrirtækja á Akureyri furða sig á því að Akureyrarbær beini jarðvinnuverkefnum sínum aðallega til eins fyrirtækis. Þeir segja að bæjarstjóri hafa boðað breytingar fyrir ári síðan, en svo virðist sem að framkvæmdadeildin hunsi hreinlega fyrirmæli bæjarstjóra. Fyrirtækin sem um ræðir eru GV-Gröfur, G.Hjálmarsson og Malbikun KM, Garðtækni og Garðverk. Verktakafyrirtækin óskuðu eftir upplýsingum úr bókhaldi Akureyrarbæjar um viðskipti framkvæmdadeildar bæjarins við jarðvinnuverktaka á tímabilinu júní 2014 til nóvember 2014. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að um sé að ræða verkefni sem ekki hafi þurft að bjóða út. Í tilkynningunni segir að forsaga málsins sé að á fundi verktaka með bæjarstjóra og fulltrúum framkvæmdadeildar þann 10. apríl 2014 voru boðaðar breytingar af hálfu bæjarins vegna slíkra viðskipta, þannig að sem mest af viðskiptunum færu í útboðsferli. Hins vegar bóli ekkert á slíkum breytingum. Samkvæmt skráningu bæjarins á tímabilinu júní 2014 til nóvember 2014 kemur í ljós að fyrirtæki í eigu sama aðilans vann liðlega þriðjung allra fyrrgreindra verka á vegum framkvæmdadeildar bæjarins á þessu tímabili. Fyrirtækin sem bærinn átti í viðskiptum við á þessu tímabili, voru hátt í þrjátíu talsins. Framkvæmdastjórarnir segja verulega fjármuni í húfi og þess vegna veki furðu að deild á vegum Akureyrarbæjar beini liðlega þriðjungi viðskipta vinna til sama aðilans, án útboða.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Gífurleg fagnaðarlæti yfir sigurræðu Almars Innlent Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Innlent Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Fyrstu tölur í Reykjavík: Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks mögulegur Innlent Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Innlent „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Innlent Fleiri fréttir Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Lokatölur í Eyjafjarðarsveit: F-listinn stækkar meirihlutann Lokatölur úr Hörgársveit: Gróska fékk flest atkvæði Samhenta sveitin með mikinn sigur í Hvalfjarðarsveit Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur þrátt fyrir missi Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Raddir okkar allra unnu stórsigur Lokatölur úr Fjallabyggð: Meirihlutinn heldur velli Lokatölur á Akureyri: Sjálfstæðismenn rétt mörðu Bæjarlistann Lokatölur í Árborg: Sjálfstæðisflokkur hélt hreinum meirihluta Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig Lokatölur í Bláskógabyggð: Það sama upp úr kössunum og síðast Ingibjörg Þóranna hlaut flest atkvæði í Dalabyggð Einar vill Viðreisn frekar en Miðflokkinn Framtíðarlistinn með meirihluta í Súðavíkurhreppi Ábyrgð náði hreinum meirihluta Lokatölur úr Hrunamannahreppi: Meirihluti D-listans heldur velli Lokatölur í Reykjanesbæ: Sjálfstæðismenn fara með stórsigur af hólmi Lokatölur í Hveragerði: Meirihlutinn fallinn Hildur segir nýjan meirihluta þurfa breiða skírskotun Ný sýn hélt meirihluta sínum í Vesturbyggð Lokatölur í Skagafirði: Byggðalistinn vinnur stórt en meirihlutinn heldur Pétur hræddur um framtíð Borgarlínunnar Lokatölur í Grundarfjarðarbæ: Framsóknarmenn með meirihluta Lokatölur á Akranesi: Meirihlutinn missti mann en heldur Sjá meira