Innlent

Loka­tölur úr Fjarða­byggð: Meiri­hlutinn heldur þrátt fyrir missi

Ritstjórn skrifar
Á kjörskrá í Fjarðabyggð eru 3.976 manns.
Á kjörskrá í Fjarðabyggð eru 3.976 manns. Vísir

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í Fjarðabyggð, en missir einn fulltrúa milli kosninga. Framsókn missir einn sömuleiðis en flokkarnir halda þó meirihluta sínum. Samfylkingin og Miðflokkurinn eru með sitthvora tvo.

Á kjörskrá í Fjarðabyggð eru 3.976 manns. Níu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Eftir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2022 mynduðu Framsókn og Fjarðalistinn meirihluta en árið 2024 slitnaði upp úr samstarfinu og mynduðu Framsókn og Sjálfstæðisflokkur þá nýjan meirihluta.

Í Fjarðabyggð er að finna meðal annars Neskaupstað, Eskifjörð, Reyðarfjörð, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð, Mjóafjörð og Breiðdalsvík.

Þeir flokkar sem nú eru í framboði til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar eru:

  • B listi - Framsókn
  • D listi - Sjálfstæðisflokkur
  • M listi - Miðflokkur
  • S listi - Samfylking og annað félagshyggjufólk

Tölurnar má sjá hér að neðan:


Tengdar fréttir

Lokatölur í Grindavík: Miðflokkur tapar tveimur

Miðflokkurinn nær aðeins einum manni inn í bæjarstjórn Grindavíkur en flokkurinn var með þrjá fulltrúa á nýliðnu kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn fá þrjá fulltrúa hvor.

Lokatölur úr Fjalla­byggð: Meirihlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Lokatölur í Suður­nesja­bæ: Samfylkingin stærst

Listi Samfylkingar og óháðra fær þrjá bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ og listi Framsókn tvo samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur fá tvo fulltrúa hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×