Erlent

Grein Rolling Stone um hópnauðgun í háskóla dregin til baka

Bjarki Ármannsson skrifar
Háskólinn í Virginia.
Háskólinn í Virginia. Vísir/AFP
Bandaríska tímaritið Rolling Stone hefur dregið til baka, og beðist afsökunar á, grein sem það birti í fyrra þar sem sagt var frá hópnauðgun á háskólasvæði í Virginíu-ríki. Rannsókn lögreglu leiddi ekkert saknæmt í ljós og skýrsla Columbia-háskólans um greinina segir hana meingallaða.

Frá þessu greinir meðal annars BBC. Greinin er eftir blaðamanninn Sabrina Erdely og segir ítarlega frá kynferðisbrotum sem kvenkyns háskólanemandi, sem aðeins er kölluð Jackie í greininni og í fjölmiðlum, segist hafa orðið fyrir árið 2012. Greinin vakti mikla athygli þegar hún var birt en skýrsla Columbia segir henni um margt ábótavant.

Því er fyrst og fremst fundið til ama að Erdely hafi stuðst eingöngu við frásögn Jackie, en ekki leitast við að fá hana staðfesta hjá öðrum. Hún hafi ekki heldur reynt að ná í mennina sem Jackie sagði hafa nauðgað sér og kalla skýrsluhöfundar það brot á „grundvallarvinnubrögðum blaðamanna.“

Höfundar skýrslunnar ganga svo langt að segja að með þessum vinnubrögðum hafi Erdely grafið undan þeim árangri sem náðst hefur við að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Greinin hafi ýtt undir hugmyndir um að margar konur beri ósannar nauðgunarsakir á karlmenn.

Will Dana, ritstjóri Rolling Stone, segir í tilkynningu að skýrsla Columbia hafi verið „sársaukafull lesning.“ Hann biður alla hlutaðeigandi afsökunar á greininni, þar á meðal starfsfólk og nemendur við Háskólann í Virginíu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×