Obama: Samkomulagið kemur í veg fyrir frekari útbreiðslu kjarnavopna Atli Ísleifsson skrifar 14. júlí 2015 14:12 Bandaríkjaforseti greindi frá því að hann muni beita neitunarvaldi gegn öllum þeim lögum í Bandaríkjaþingi sem miða að því að hindra framgang samkomulagsins. Vísir/AFP
Nýtt samkomulag um kjarnorkuáætlun Írana er trygging fyrir að kjarnavopn breiðist ekki enn frekar út. Þetta sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann brást við fréttum af samkomulaginu fyrr í dag. „Í dag höfum við stöðvað útbreiðslu kjarnavopna í heimshlutanum. Þetta er samningur sem tryggir öruggari og vænlegri heim,“ sagði forsetinn. Samkvæmt samkomulaginu er komið í veg fyrir að Íranir geti þróað kjarnavopn, en þeir hafa ætíð haldið því fram að kjarnorkuáætlun landsins þjóni friðsamlegum tilgangi. Í skiptum verður viðskiptaþvingunum vesturveldanna á hendur Íran aflétt.Brot myndi kalla á hörð viðbrögð Tilkynnt var um samkomulag um takmarkanir á kjarnorkuáætlun Írana fyrr í dag, en samningaviðræður hafa staðið undanfarin ár á milli Írans og sex heimsvelda – Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Kína, Rússlands og Þýskalands. Obama sagði að ef írönsk stjórnvöld færu ekki að ákvæðum samningsins myndi það kalla á hörð viðbrögð og viðskiptaþvingunum yrði aftur komið á.Tryggja að farið sé að ákvæðum samningsinsForsetinn lagði áherslu á að sérfræðingar muni sjá til þess að farið sé í smáatriðum eftir ákvæðum samningsins. Verður þeim meðal annars veittur aðgangur að kjarnorkustöðvum Írana. Obama greindi einnig frá því að hann muni beita neitunarvaldi sínu gegn öllum þeim lögum í Bandaríkjaþingi sem miða að því að hindra framgang samkomulagsins, en margir þingmenn hafa lýst sig andsnúna því.
Tengdar fréttir Forsætisráðherra Ísraels: „Samkomulagið söguleg mistök“ Enn liggur ekki fyrir hvað felst í kjarnorkusamkomulagi milli Íran og sex þjóða en Ísrael fordæmir það engu að síður. 14. júlí 2015 09:25 Samið við Írana: Sögulegt samkomulag og opnað á „nýjan kafla vonar“ Heimsveldin hafa náð samkomulagi við Írani um takmarkanir á kjarnorkuáætlun landsins. 14. júlí 2015 10:01 Mest lesið Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Innlent Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Erlent „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Innlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ Innlent Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Erlent Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Innlent Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Innlent Fleiri fréttir Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Sjá meira
Forsætisráðherra Ísraels: „Samkomulagið söguleg mistök“ Enn liggur ekki fyrir hvað felst í kjarnorkusamkomulagi milli Íran og sex þjóða en Ísrael fordæmir það engu að síður. 14. júlí 2015 09:25
Samið við Írana: Sögulegt samkomulag og opnað á „nýjan kafla vonar“ Heimsveldin hafa náð samkomulagi við Írani um takmarkanir á kjarnorkuáætlun landsins. 14. júlí 2015 10:01