Gerrard: Bekkjarsetan í Madríd gerði útslagið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. júní 2015 14:30 Steven Gerrard á bekknum í umræddum leik gegn Real Madrid. Vísir/Getty
Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, kvaddi uppeldisfélagið sitt í vor eftir að hafa verið hjá félaginu alla sína tíð. Ákvörðun hans kom í kjölfar þess að hann fékk minna hlutverk hjá knattspyrnustjóranum Brendan Rodgers. Hann segir að ákvörðun Rodgers um að setja sig á bekkinn fyrir leik liðsins gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í nóvember hafi gert útslagið. „Þetta var um það leyti sem ég var byrjaður að íhuga mín mál. Ég átti nokkur samtöl við Brendan þar sem hann sagðist vilja stýra því hversu marga leiki ég spila svo ég yrði ekki þreyttur,“ sagði Gerrard í viðtali við Rio Ferdinand sem birtist á BT-sjónvarpsstöðinni í dag. „En þetta var sérstök staða vegna þess að þetta var leikur gegn Real Madrid og ég vildi spila.“ „Ég var miður mín á bekknum því ég vildi spila. Það átti þátt í því að ég tók ákvörðun um að prófa eitthvað nýtt.“ Gerrard var einnig spurður um frægt atvik er Demba Ba skoraði í 2-0 sigri Chelsea á Liverpool á þarsíðustu leiktíð. Ba komst einn í gegn eftir að Gerrard hafði runnið til en Liverpool var hársbreidd frá því að vinna titilinn þetta tímabilið. „Ég rann til á slæmum tíma. Þetta voru grimm örlög fyrir mig. Það líður ekki sá dagur þar sem ég velti fyrir mér hvað hefði gerst ef hlutirnar hefðu atvikast á annan hátt.“
Enski boltinn Mest lesið Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Sjá meira