De Bruyne fjórfaldaði laun sín er hann gekk til liðs við Manchester City Kristinn Páll Teitsson skrifar 28. september 2015 22:45 De Bruyne fagnar hér marki sínu gegn Tottenham um helgina. Vísir/Getty
Yfirmaður íþróttamála hjá Wolfsburg, Klaus Allofs, segir félagið hafi neyðst til að selja Kevin De Bruyne til Manchester City í sumar eftir að enska félagið bauð honum fjórfalt hærri laun en hann var með hjá þýska félaginu. De Bruyne sem gekk til liðs við Manchester City fyrir 54 milljónir punda í sumar varð dýrasti leikmaðurinn í sögu þýsku deildarinnar eftir að hafa verið einn besti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili. Lengi vel benti allt til þess að Wolfsburg myndi ekki samþykkja tilboð enska félagsins en félögin komust loksins að samkomulagi stuttu fyrir lok félagsskiptagluggans. De Bruyne hefur farið vel af stað með nýja félagi sínu en hann hefur skorað þrjú mörk í þeim þremur leikjum sem hann hefur byrjað inná. „Við reyndum að finna lausn sem þýddi að Kevin yrði áfram hjá okkur en við komumst að því að þetta yrði besta lausnin. Þegar leikmaður fær tilboð sem hljómar upp á fjórföldun á launum þarf að íhuga hvaða áhrif þetta hefur á hann“ sagði Allofs sem sagði að Wolfsburg gæti ekki haldið stjörnum ef stórlið færu að spyrjast út í leikmenn þeirra. „Þetta var tækifæri sem hann fær kannski einu sinni á ferlinum, við getum ekki keppt við félög eins og Manchester City, Paris Saint-Germain, Bayern Munchen og Barcelona þegar kemur að þessu. Það er í raun aldrei hægt að segja að leikmaður sé einfaldlega ekki til sölu þegar þessi félög eru til staðar.“
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Chelsea - Brighton | Welbeck fær gamla félagið í heimsókn Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Sjá meira