Wenger vill fá fleiri mörk frá Özil Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2015 12:59 Wenger hefur trú á því að Özil muni springa út í vetur. vísir/getty
Arsene Wenger segir að Mesut Özil geti komið sér í hóp allra bestu leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar á komandi tímabili. „Hann er meira afgerandi þegar kemur að því að stjórna leikjum,“ sagði Wenger um Þjóðverjann sem er dýrasti leikmaður í sögu Arsenal en hann kom til liðsins frá Real Madrid fyrir 42,5 milljónir punda haustið 2013. „Hann er líkamlega sterkari og betur í stakk búinn til að takast á við ensku úrvalsdeildina. Hann er orðinn harðari af sér og geti orðið einn af bestu leikmönnum deildarinnar á næsta tímabili.“ Þrátt fyrir að Wenger sjái framfarir í leik Özils vill hann sjá Þjóðverjann skora meira en hann hefur gert. „Ég vil að hann skori meira því hann spilar í þannig stöðu. En hann nýtir færin sín ekki nógu vel. Hann veit af þessu og vill bæta sig svo ég er bjartsýnn á að við fáum fleiri mörk frá honum,“ sagði Wenger sem vill sjá Özil skora a.m.k. 10 mörk á tímabili. Wenger segir einnig að það muni hjálpa Özil að hafa fengið heilt undirbúningstímabil með Arsenal í fyrsta skipti síðan hann kom til félagsins. „Özil kom mjög seint til okkar 2013 og náði ekki undirbúningstímabilinu og ári seinna var hann dauðþreyttur eftir HM. Hann meiddist svo og var frá í fjóra mánuði en sýndi hvað í honum býr á seinni hluta tímabilsins. „En núna kemur stóra prófið: tímabilið í ár er mjög mikilvægt fyrir hann,“ sagði Wenger. Arsenal mætir Chelsea í leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag.Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Sjá meira