Depay vill fá sjöuna hjá Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2015 11:30 Memphis Depay. Vísir/Getty
Memphis Depay er vonarstjarna Manchester United á komandi tímabili í ensku úrvalsdeildinni og þessi 21 árs gamli Hollendingur hræðist ekki pressuna sem fylgir því að spila á Old Trafford. Daily Telegraph segir frá því að Memphis Depay hafi óskað eftir því við knattspyrnustjórann Louis van Gaal að fá að spila í treyju númer sjö á þessu tímabili. Angel di Maria var síðasti maðurinn til að spila í sjöunni en hann entist bara í eitt tímabil hjá Manchester United og var seldur í vikunni til franska liðsins Paris Saint-Germain. Margir af farsælustu leikmönnum í sögu Manchester United hafa spilað í sjöunni en það eru menn eins og George Best, Bryan Robson, Eric Cantona, David Beckham og Cristiano Ronaldo. Það hefur ekki gengið eins vel hjá sjöum Manchester United liðsins undanfarin ár. Michael Owen var mikið meiddur, Antonio Valencia tók við af honum og leyfði Angel di Maria síðan að fá sjöuna síðasta haust. Angel di Maria kom fyrir metupphæð frá Real Madrid en stóð ekki undir væntingum og er nú á förum. Nían er líka laus hjá Manchester United en Memphis Depay var búinn að fá níuna og hefur spilað í henni á undirbúningstímabilinu. Heimildir Daily Telegraph herma að Louis van Gaal hafi tekið vel í beiðni Memphis Depay enda að mati Van Gaal tákn um metnað og sjálfstraust hjá landa hans. Memphis Depay hjálpaði PSV Eindhoven að vinna hollenska meistaratitilinn á síðustu leiktíð og er einn af allra efnilegustu knattspyrnumönnum Evrópu. Það er margt sem bendir til þess að hann hafi nú augastað að fara svipaða leið og Cristiano Ronaldo gerði á sínum tíma en portúgalski knattspyrnusnillingurinn bætti sig mikið á árum sínum með Manchester United. Takist Memphis Depay að bæta sig jafnmikið á næstu árum og Ronaldo gerði þá er von á góðu fyrir stuðningsmenn Manchester United.Síðustu leikmenn til að spila í númer sjö hjá Manchester United: Eric Cantona - (1993-1997) David Beckham - (1997-2003) Cristiano Ronaldo - (2003-2009) Michael Owen - (2009-2012) Antonio Valencia - (2012-13) Angel di Maria - (2014-2015)
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Sjá meira