Sonur Muammar Gaddafi dæmdur til dauða Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. júlí 2015 10:01 Said al-Islam var handsamaður undir lok borgarastyrjaldarinnar árið 2011. Vísir/AP
Elsti sonur hins fallna einræðishærra Líbíu, Muammar Gaddafi, hefur verið dæmdur til dauða fyrir stríðsglæpi í líbísku borgarastyrjöldinni árið 2011. Dómstólar í Líbíu dæmdu Saif al-Islam Gaddafi en Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafði áður birt honum ákæru vegna stríðsglæpa. Gaddafi var handtekinn í nóvember 2011 af líbískum yfirvöldum sem neituðu að afhenda hann til Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Saif al-Islam Gaddafi var ekki viðstaddur réttarhaldið en hann er staddur í borginni Zintan, um 140 kílómetrum suðvestan af Tripoli, höfuðborg Líbíu. Þar er honum haldið föngum af einum af uppreisnarhópunum sem risu upp gegn stjórn föðurs Saif-al Islam. Fyrrverandi forsætisráðherra í stjórn Gaddafi og fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu hans voru einnig dæmdir til dauða. Saif al-Islam Gaddafi var meðlimur í innsta hring föður síns og útskrifaðist meðal annars með doktorsgráðu frá London School of Economics. Fjallaði doktorsverkefni hans um þátt borgaralegs samfélags í lýðræðisvæðingu. Gaddafi og hinir meðdæmdu eiga rétt á því að áfrýja dómnum að því er kemur fram í frétt BBC.
Tengdar fréttir Sonur Gaddafis gæti átt dauðadóm yfir höfði sér Saif Gaddafi, sonur fyrrverandi einræðisherrans Muammars Gaddafi, gæti átt yfir höfði sér dauðadóm verði réttað yfir honum í Líbíu. Mannréttindasamtökin Amnesty International kröfðust þess að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Hag myndi annast réttarhöldin. 21. nóvember 2011 10:07 Sonur Gaddafis handsamaður Saif Gaddafi, sonur Muammars Gaddafis, hefur verið handtekinn samkvæmt líbíska þjóðarráðinu og BBC greinir frá. 19. nóvember 2011 11:56 Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Erlent Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Innlent Aflvana togari hættulega nálægt landi Innlent Séra Þórir Stephensen er látinn Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Sjá meira
Sonur Gaddafis gæti átt dauðadóm yfir höfði sér Saif Gaddafi, sonur fyrrverandi einræðisherrans Muammars Gaddafi, gæti átt yfir höfði sér dauðadóm verði réttað yfir honum í Líbíu. Mannréttindasamtökin Amnesty International kröfðust þess að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Hag myndi annast réttarhöldin. 21. nóvember 2011 10:07
Sonur Gaddafis handsamaður Saif Gaddafi, sonur Muammars Gaddafis, hefur verið handtekinn samkvæmt líbíska þjóðarráðinu og BBC greinir frá. 19. nóvember 2011 11:56