Enski boltinn

Stoke búið að gefast upp á Shaqiri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Xherdan Shaqiri á æfingu með Inter.
Xherdan Shaqiri á æfingu með Inter. Vísir/Getty
Stoke er hætt að eltast við Svisslendinginn Xherdan Shaqiri sem er á mála hjá Inter á Ítalíu. Viðræður á milli félaganna hafa átt sér stað en knattspyrnustjórinn Mark Hughes segir ólíklegt að af þessu verði.

„Ég fór og ræddi við Shaqiri,“ sagði Hughes í samtali við enska fjölmiðla. „Þetta var gott spjall. Við þurftum að komast að niðurstöðu um hvort að það væri möguleiki á að ná saman en ég fékk þá tilfinningu að það myndi ekkei gerast.“

„Kannski verður málið skoðað aftur síðra en mér finnst líklegra að það verði ekkert af þessu. Við erum að einbeita okkur að öðrum leikmönnum nú,“ bætti Hughes við.

Victor Moses var í láni hjá Stoke á síðustu leiktíð og stóð sig vel. Hann er nú kominn aftur til Chelsea og telur Hughes að hann verði um kyrrt þar á næstu leiktíð.

Roberto Mancini, stjóri Inter, sagði mögulegt að Shaqiri yrði seldur í sumar en svo virðist sem að kappinn sé ekki áhugasamur um að fara til Stoke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×