Sherwood: Liverpool þarf að greiða riftunarverð Benteke Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. júlí 2015 21:00 Vísir/Getty
Liverpool er í leit að sóknarmanni eftir brotthvarf Raheem Sterling og hafa Christian Benteke og Marco Reus verið sterklega orðaðir við félagið. Benteke endaði síðasta tímabil af krafti með Aston Villa og átti til að mynda stóran þátt í því að slá Liverpool úr leik í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Fullyrt í enskum fjölmiðlum að viðræður á milli félaganna um Benteke muni eiga sér stað á næstu dögum en stjórinn Tim Sherwood segir að ekki komi til greina að semja um lægra kaupverð en 32,5 milljónir punda sem er riftunarverð á samningi Benteke við Villa. „Ég held að Christian sé meira virði en 32 milljónir punda. En við viljum ekki selja. Við viljum ekki fá þennan pening. Þegar maður missir leikmann þá er mjög erfitt að finna einhvern til að fylla í skarð viðkomandi. Það er nánast ómögulegt,“ sagði Sherwood. „Við vitum að Christian er mjög góður leikmaður og við viljum halda honum. En ef einhver er tilbúinn að greiða riftunarverð samningsins þá er ekkert sem við getum gert í því. En þar til að það gerist er hann leikmaður Aston Villa og við erum mjög ánægðir með það.“ Benteke á tvö ár eftir af samningi sínum við Villa en þess má geta að Liverpool seldi Sterling til Manchester City fyrir 49 milljónir punda. Þar af fara tæpar tíu milljónir til QPR sem seldi Sterling til Liverpool á sínum tíma.
Enski boltinn Tengdar fréttir Liverpool að undirbúa tilboð í Benteke Forráðamenn enska félagsins virðast hvergi nærri hættir á leikmannamarkaðnum. 14. júlí 2015 08:00 Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Sjá meira
Liverpool að undirbúa tilboð í Benteke Forráðamenn enska félagsins virðast hvergi nærri hættir á leikmannamarkaðnum. 14. júlí 2015 08:00