Enski boltinn

Richards: Delph verður að vera öruggur með spiltíma hjá Man City

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Richards var á sínum tíma ein helsta vonarstjarna Englands.
Richards var á sínum tíma ein helsta vonarstjarna Englands. vísir/getty
Micah Richards ræður liðsfélaga sínum hjá Aston Villa, Fabian Delph, frá því að fara til Manchester City nema hann sé öruggur með fast sæti í liðinu.

Richards segir að Delph hafi leita ráða hjá sér vegna mögulegra vistaskipta til Manchester City en sá fyrrnefndi lék með liðinu um árabil.

„Þetta er erfið ákvörðun. Hann verður að vera öruggur með mikinn spilatíma. Hann er búinn að vera ótrúlegur fyrir Aston Villa,“ sagði Richards sem þekkir það af eigin raun hversu erfitt það getur verið að tryggja sér sæti í byrjunarliðinu hjá stóru félagi eins og Manchester City.

Richards er uppalinn hjá City og lék 245 leiki með aðalliði félagsins. Hann var lengi vel fastamaður í liðinu en missti síðan sæti sitt í því til Pablo Zabaleta. Hann lék lítið síðustu árin sín hjá City og var m.a. lánaður til Fiorentina á Ítalíu í fyrra.

„Allir leikmenn vilja spila með toppliði. En hann ætti ekki að fara til City ef hann verður bara rulluspilari. James Milner spilaði 6-7 leikstöður fyrir City og vildi samt fara frá félaginu,“ bætti Richards við.

Delph, sem er fyrirliði Aston Villa, hefur verið sterklega orðaður við City að undanförnu en talið er að Manchester-liðið sé tilbúið að borga átta milljónir punda fyrir miðjumanninn sem er orðinn fastamaður í enska landsliðinu.

Delph er mögulega á förum til Manchester City.vísir/getty

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×