Dunga: Það þarf róttækar breytingar á brasilískum fótbolta Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. júní 2015 23:00 Vísir/Getty
Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, segir að það sé þörf á að taka knattspyrnu í landinu algjörlega í gegn. Brasilía féll úr leik í 8-liða úrslitum Suður-Ameríkukeppninnar eftir að hafa tapað fyrir Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Brasilía þótti ekki spila vel í leiknum og margir vilja að Dunga verði rekinn. Landslið Brasilíu var í vandræðum alla keppnina. Eftir að hafa unnið Perú með marki á lokamínútunni í fyrsta leik tapaði Brasilía fyrir Kólumbíu. Liðið komst svo áfram með 2-0 sigri á Venesúela í síðasta leik í riðlinum. Brasilía tapaði 7-1 fyrir verðandi heimsmeisturum Þýskalands á HM á heimavelli í fyrra og gæti verið að brasilísk knattspyrna sé enn að jafna sig á því. „Við þurfum að hugsa brasilíska knattspyrnu upp á nýtt. Ekki bara inni á vellinum,“ sagði Dunga við fjölmiðla eftir tapið í gær. „Við þurfum að horfast í augu við að aðrar þjóðir hafa bætt sig. Við þurfum að sýna auðmýkt og leggja meiri vinnu á okkur. Við vitum að það er mikið verk óunnið.“ Dunga tók við sem landsliðsþjálfari af Luiz Felipe Scolari eftir HM í fyrra og vann tíu vináttulandsleiki í röð fyrir Suður-Ameríkukeppnina. „Við vorum ekki sáttir þrátt fyrir alla þessa sigurleiki. Við vissum að við þyrftum að bæta okkur. Nú þurfum við að sjá hvort við séum í raun góðir eða hvort við eigum yfir höfuð möguleika á að bæta okkur - hvort við höfum styrkinn til þess.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Fleiri fréttir Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík Sjá meira