Innlent

Dagskrá dagsins - 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna

Frá Kvennafrídeginum 2005.
Frá Kvennafrídeginum 2005. Vísir/Vilhelm
Fjölbreytt dagskrá er í Reykjavík í dag, 19. júní, til að fagna aldarafmæli kosningaréttar kvenna. Dagskráin er á vegum framkvæmdanefndar 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. 

Klukkan 11.00-14.00 - Óðinstorg, Hljómskálagarðurinn og Hallveigarstaðir 

Tónlistarhópurinn Náttsól frá Hinu húsinu og Unnur Sara Eldjárn flytja lög eftir kventónskáld á Óðinstorgi.

12.00-13.00 Gjörningaklúbburinn

Gjörningaklúbburinn við Perlufestina í Hljómskálagarði.

13.15 - Ganga frá Perlufestinni í Hólavallakirkjugarð við Suðurgötu.

Forseti borgarstjórnar, Sóley Tómasdóttir, leggur blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Kl. 13.30 Opið hús á Hallveigarstöðum: „Félög kvenna fyrr og nú“. Ávörp, súpa og spjall. KÍ og KRFÍ.

14.30-15.30.  Lækjargata ómar til heiðurs konum

Söngfjelagið undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar syngur við Stjórnarráðið.  Nýlókórinn undir Snorra Sigfúsar Birgissonar flytur talverkið Vatnsberann eftir Hörpu Björnsdóttur við styttuna Vatnsberann.  Sönghópur úr Domus Vox undir stjórn Margrétar Pálmadóttur syngur við styttuna Móðurást.

15.00-16.00 - Austurvöllur ómar til heiðurs konum 

Höfundarverk kvenna í öndvegi: Karlakórinn Þrestir undir stjórn Jóns Kristins Cortez. Söngsveitin Fílharmónía undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar.

15.45 - Skrúðganga frá Miðbæjarskóla að Austurvelli.

Barnakór Vatnsendaskóla með íslenska fána leiðir göngu frá Miðbæjarskólanum inn á Austurvöll ásamt harmonikusveit stúlkna, félögum í Æskulýðssambandi Íslands, Æskulýðsvettvangnum og öðrum hátíðargestum.

16.00-17.00 Athöfn við Austurvöll (í beinni útsendingu RÚV)

- Kórsöngur: „Vorlauf“, lag Hildigunnar Rúnarsdóttur við ljóð Þorsteins Valdimarssonar.

- Ávarp til æskunnar: Frú Vigdís Finnbogadóttir talar frá svölum Alþingishússins.

- Léttsveit Reykjavíkur undir stjórn Gísla Magna Sigríðarsonar frumflytur „Við gerum fagran neista að björtu báli“. Lag eftir Gísla Magna, ljóð eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur.

- Ávarp forseta Alþingis, Einars K. Guðfinnssonar, frá svölum Alþingishússins.

- Barnakór Vatnsendaskóla undir stjórn Þóru Marteinsdóttur syngur „Dómar heimsins“. Lag eftir Valgeir Guðjónsson, ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum.

- Afhjúpun listaverks eftir Ragnhildi Stefánsdóttur myndhöggvara. Höggmynd af Ingibjörgu H. Bjarnason alþingismanni, fyrstu konunni sem kjörin var til setu á Alþingi, afhjúpuð við Skála Alþingis.

- Léttsveit Reykjavíkur og Kvennakórinn Katla syngja „Áfram stelpur“. Texti eftir Dagnýju Kristjánsdóttur og Kristján J. Jónsson við lag eftir Gunnar Edander.- Baráttuávarp, Fríða Rós Valdimarsdóttir formaður Kvenréttindafélags Íslands. Tónlist.

- Kynnir er Þórunn Lárusdóttir leikkona.

13.00-17.00 Ráðhús Reykjavíkur

- „Með eld í brjósti“. Gjörningur Elínar Önnu Þórisdóttur og Hörpu Rúnar Ólafsdóttur. Kvennakórinn Katla syngur undir stjórn Lilju Daggar Gunnarsdóttur og Hildigunnar Einarsdóttur.

- Söngflokkurinn Áfram stelpur flytur nokkur lög af plötunni „Áfram stelpur“.

- Leiklestur úr Lokaæfingueftir Svövu Jakobsdóttur. Nanna Kristín Magnúsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson leikarar flytja.

- Verðlaun afhent í smásagnasamkeppni Soroptimista vegna 100 ára afmælisins.

- Unnur Sara Eldjárn leikur og syngur. Dagskrá er á vegum Ungra femínista  í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 13.00-17.00.



20.00 Guðsþjónusta

Kvennamessa Kvennakirkjunnar á Klambratúni.

20.30 - „Höfundur óþekktur“ - Stórtónleikar í Hörpu

Tónleikar KÍTÓN og framkvæmdanefndar um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Þema: Höfundarverk kvenna – kynjasnúningur og endurkoma. Tónleikunum er sjónvarpað beint á RÚV.

Opnun sýninga:

15.00 „Hvað er svona merkilegt við það? – Störf kvenna í 100 ár“.

Sýningin opnuð í Þjóðminjasafninu.

17.00 „Tvær sterkar“.

Sýning á verkum Júlíönu Sveinsdóttur og hinnar færeysku Ruth Smith opnuð á Kjarvalsstöðum.

08.00-19.00 „VERA:KVEN:VERA“.

Innsetning Guðrúnar Sigríðar Haraldsdóttur í Ráðhúsi Reykjavíkur.

09.00-17.00 „Vér heilsum glaðar framtíðinni“. 

Sýning í Þjóðarbókhlöðu.

10.00-17.00 „Hjáverkin – atvinnusköpun kvenna í heimahúsum.“

Sýning í Árbæjarsafni. Aðgangur ókeypis og leiðsögn um þátt kvenna í öllum húsum safnsins kl. 11.00 og 14.00.

11.00-18.00 „Ásýnd kvenna við upphaf kosningaréttar 1915“.

Sýning Borgarskjalasafns Reykjavíkur í Grófarhúsi.

11.00-18.00 „Sjókonur. Sjósókn íslenskra kvenna í fortíð og nútíð“.

Sýning í Sjóminjasafninu.

Hátíðahöld verða víða um land þann 19. júní, sjá dagskrá á hverjum stað á vefslóðinni: kosningarettur100ara.is.

Hluti viðburða í dagskránni er í samstarfi við Reykjavíkurborg, söfnin í borginni, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands  og Kvennakirkjuna.


Tengdar fréttir

Staða kvennastétta á Íslandi 2015

Ég man enn tilfinningarnar sem vöknuðu þegar ég sem óharðnaður unglingur las um það í kennslubók í Íslandssögu að konur yfir 40 ára hefðu fengið kosningarétt þann 19. júní 1915 eftir langa og stranga baráttu frá 1885. Ég man bæði eftir undrun yfir því að

Höldum baráttunni áfram

Við fögnum í dag aldarafmæli kosningaréttar kvenna. Bríet Bjarnhéðinsdóttir þakkaði fyrir réttum 100 árum þingmönnunum sem komu að því að breyta stjórnarskránni. Þeir voru auðvitað allir karlar. Það minnir okkur á að það er ekki síður hlutverk karla en kvenna að koma jafnrétti á.

Dagurinn hefur mikla þýðingu fyrir allar konur

Auður Styrkársdóttir hefur unnið hörðum höndum ásamt framkvæmdanefnd 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna frá árinu 2013. Dagurinn er merkileg kaflaskil í sögunni.

Kosningaréttur kvenna í 100 ár

Til hamingju með kvenréttindadaginn, kæru landsmenn. Í dag ber að hugsa til allra þeirra kvenna sem áratugum saman beittu sér fyrir kosningarétti kvenna til Alþingis og karlanna sem studdu þær og greiddu að lokum atkvæði með því að veita konum þessi sjálfsögðu réttindi.

Jafnrétti er verkefni allra

19. júní er merkisdagur í sögu íslenskrar jafnréttisbaráttu. Þann dag fyrir 100 árum fengu íslenskar konur og verkamenn kosningarétt og kjörgengi til Alþings. Réttindi sem virðast sjálfgefin nú til dags en þóttu það ekki þegar Ísland varð eitt fyrstu landa heims til að tryggja konum kosningarétt.

Til hamingju með daginn!

Í dag hafa konur haft kosningarétt á Íslandi í 100 ár. Kvenfrelsisbaráttan er enn eldri. Hún hefur skilað okkur mikilvægum lýðræðislegum réttindum og samfélagi þar sem konur og karlar hafa sama rétt og sömu skyldur. Að minnsta kosti að forminu til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×