Enski boltinn

Walcott: Verðum að stefna á meistaratitilinn á næsta tímabili

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arsenal er sigursælasta lið í sögu ensku bikarkeppninnar.
Arsenal er sigursælasta lið í sögu ensku bikarkeppninnar. vísir/getty
„Við höfum sýnt að við erum alvöru lið og ráðum við að spila undir pressu. Ég vil óska leikmönnunum, starfsliðinu og stuðningsmönnunum til hamingju. Við erum í skýjunum,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, glaðbeittur eftir öruggan sigur Skyttanna á Aston Villa í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á Wembley á laugardaginn.

Þetta er annað árið í röð sem Arsenal vinnur ensku bikarkeppnina en Skytturnar þurftu að hafa mun meira fyrir hlutunum í úrslitaleiknum gegn Hull City fyrir ári síðan.

Þá var Arsenal 2-0 undir eftir átta mínútna leik en lærisveinum Wengers tókst að snúa dæminu sér í vil, jafna metin og svo tryggði Aaron Ramsey Arsenal sigurinn með marki í framlengingu.

Arsenal hefur nú unnið bikarkeppnina tólf sinnum, oftast allra liða, en Skytturnar hafa unnið sex af þessum tólf titlum undir stjórn Wengers. Frakkinn, sem hefur verið við stjórnvölinn hjá Arsenal frá 1996, er orðinn sigursælasti stjórinn í sögu bikarkeppninnar, ásamt George Ramsay sem stýrði Aston Villa til sex bikartitla á sínum tíma.

Arsenal hafði öll völd á vellinum á laugardaginn, allt frá fyrstu mínútu, og það var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda. Villa-menn, sem slógu Liverpool út í undanúrslitunum, mættu einfaldlega ofjörlum sínum á laugardaginn.

Til marks um það átti liðið ekki skot á markið og fékk enga hornspyrnu í leiknum. Þeirra hættulegasti sóknarmaður, Christian Benteke, var í gjörgæslu hjá varnarmönnum Arsenal og aðrir leikmenn Villa komust lítt áleiðis.

Það tók Arsenal samt sem áður 40 mínútur að brjóta ísinn. Það gerði Theo Walcott með föstu skoti eftir fyrirgjöf Nachos Monreal og skalla Alexis Sánchez þvert fyrir markið. Walcott, sem skoraði þrennu gegn West Brom í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar, var í byrjunarliði Arsenal á kostnað Olivers Giroud og hann þakkaði Wenger traustið með þessu fallega marki.

Eftir leikinn sagði Walcott að Arsenal ætti að setja stefnuna á Englandsmeistaratitilinn á næsta tímabili en Skytturnar hafa ekki unnið þann stóra síðan 2004:

„Við verðum að stefna á að vinna Englandsmeistaratitilinn á næsta ári. Við erum búnir að vinna bikarinn tvö ár í röð en Arsenal hefur sjaldan verið með svona öflugan leikmannahóp svo við ættum að ná lengra,“ sagði Walcott.

Seinni hálfleikurinn var aðeins fimm mínútna gamall þegar Sánchez tvöfaldaði forystu Arsenal með frábæru skoti af löngu færi í slá og inn.

Shay Given, hinn 39 ára gamli markvörður Villa, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið enda var skotið fast og mikill snúningur á boltanum. Þetta var 25. mark Sánchez á tímabilinu en hann hefur heldur betur staðið undir væntingum á sínu fyrsta tímabili á Emirates.

Per Mertescker skoraði þriðja markið á 62. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Santís Cazorla og varamaðurinn Giroud negldi svo síðasta naglann í kistu Villa þegar hann stýrði fyrirgjöf Alex Oxlade-Chamberlain í netið í uppbótartíma.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×