Gomis tryggði Swansea aftur sigur á Arsenal Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2015 17:36 Gomis fagnar sigurmarki sínu. vísir/getty
Swansea varð í kvöld fyrsta liðið til að vinna Arsenal í ensku úrvalsdeildinni síðan Tottenham bar sigurorð af nágrönnum sínum 7. febrúar síðastliðinn. Lokatölur 0-1, Swansea í vil sem vann báða leiki liðanna á tímabilinu. Gylfi Þór Sigurðsson, sem skoraði glæsilegt mark í fyrri leik liðanna, var í byrjunarliði Swansea og lék allan leikinn. Arsenal var miklu meira með boltann í fyrri hálfleik en náði ekki einu einasta skoti á markið. Staðan var markalaus í hálfleik sem kom ekki mikið á óvart í ljósi þess að í síðustu sjö leikjum þessara liða hefur aðeins eitt mark verið skorað í fyrri hálfleik en 18 í þeim seinni. Leikurinn opnaðist meira í seinni hálfleik en mörkin létu á sér standa. Skytturnar juku pressuna eftir því sem leið á seinni hálfleikinn og Lukasz Fabianski, fyrrverandi leikmaður Arsenal, þurfti nokkrum sinnum að taka á honum stóra sínum í marki Swansea. En það voru gestirnir frá Wales sem gerðu eina mark leiksins. Þar var á ferðinni varamaðurinn Bafetimbi Gomis á 85. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Jefferson Montero. Frakkinn skoraði einnig sigurmarkið í fyrri leik liðanna, með skalla eftir sendingu frá Montero. Endurtekið efni í viðureignum þessara liða. Swansea er nú aðeins einu stigi frá Southampton í 7. sæti deildarinnar en Arsenal er enn í því þriðja.
Enski boltinn Mest lesið Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Körfubolti Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Fótbolti Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Körfubolti Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Fótbolti Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Handbolti Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Fleiri fréttir Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjá meira