Houllier: Gerrard verður frábær knattspyrnustjóri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2015 09:00 Steven Gerrard. Vísir/Getty
Steven Gerrard er að kveðja Liverpool sem leikmaður í vor og mun á næsta tímabili spila með Los Angeles Galaxy í bandarísku deildinni. Það eru þó einhverjir sem sjá þennan 34 ára leikmann koma aftur til Englands og þá sem knattspyrnustjóri. Einn af þeim er Gerard Houllier, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool. Houllier var knattspyrnustjóri Liverpool á árunum 1998 til 2004 og gaf Gerrard ekki bara fyrsta tækifærið í aðalliði Liverpool heldur gerði hann einnig að fyrirliða liðsins 2003. „Gerrard verður frábær knattspyrnustjóri af því að hann setur liðið alltaf í fyrsta sætið," sagði Gerard Houllier í viðtali við BBC. „Hann hefur allt sem þarf til þess að hugsa vel um liðið sitt, félagið og uppbyggingu annarra," sagði Houllier. „Gerrard er fæddur leiðtogi, mjög áhrifamikill og andlega hvetjandi. Hann er maður sem menn vilja fylgja," sagði Houllier. „Hann mun vinna sér inn sinn stað í hjarta stuðningsmanna Galaxy alveg eins og Beckham. MLS-deildin er heppin að fá hann og hann mun ná góðum árangri þar, Ég veit líka fyrir víst að hann mun snúa aftur til Liverpool. Kannski ekki á allra næstu árum en einhvern tímann seinna," sagði Houllier. Gerard Houllier og Steven Gerrard unnu sex titla saman þar á meðal bikarþrennuna 2000-01 þegar Liverpool vann enska bikarinn, enska deildarbikarinn og UEFA-bikarinn.
Enski boltinn Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Hnéskel Franks Arons brotnaði Körfubolti Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Handbolti Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Íslenski boltinn Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjá meira