Carragher: Ekki hægt að gagnrýna Ferguson fyrir að láta Pogba fara Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. maí 2015 09:10 Paul Pogba fær risasamning í sumar. vísir/getty
Jamie Carragher, sparkspekingur Sky Sports, segir að ekki eigi að gagnrýna Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Manchester United, fyrir að hafa látið Paul Pogba fara á sínum tíma. Pogba var ekki í framtíðaráformum Skotans þegar hann sleppti honum til Juventus árið 2012, en Frakkinn ungi var þá aðeins búinn að koma sjö sinnum við sögu hjá aðalliði Manchester United. Hann er í dag einn eftirsóttasti leikmaður heims og ekki varð áhuginn á honum minni eftir frábæra frammistöðu á Santiago Bernabéu í gær þar sem hann lagði upp markið sem kom Juventus í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. "Eflaust horfa menn til baka núna með smá eftirsjá og væntanlega væri Louis van Gaal til í að vera með Pogba í hópnum fyrir næstu leiktíð. Það sama má segja um Man. City og Chelsea," sagði Carragher eftir leikinn. "Það er erfitt að efast um ákvarðanir Sir Alex hvað varðar að fá unga leikmenn til félagsins. Hann var einn af þeim allra bestu í því." "Ég held að mergur málsins hafi verið að Pogba var orðinn aðeins of góður með sig og vildi fá laun eins og hann væri byrjunarliðsmaður þegar hann var enn í varaliðinu." "Miðað við það sem lið þurfa að borga fyrir hann í dag er auðvelt að segja það hefði borgað sig fyrir United að gefa honum það sem hann vildi, en þannig ákvarðanir hafa áhrif á félagið og aðrir ungir leikmenn heyra og vita af því." "Líklega hafði Sir Alex rétt fyrir sér þarna eins og svo oft áður þó menn sjái kannski aðeins eftir ákvörðuninni í dag. Menn verða að hafa reglur og standa við hugmyndafræði sína þegar kemur að ungum leikmönnum," segir Jamie Carragher.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira