Innlent

Fleiri skemmdarverk á bílum í Breiðholti

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Lögregla hefur haft nóg á sinni könnu í gær og nótt.
Lögregla hefur haft nóg á sinni könnu í gær og nótt. Vísir/Vilhelm
Tilkynnt var um skemmdarverk á tveimur bifreiðum í Breiðholti rétt eftir miðnætti. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er málið í rannsókn en vitað er hver gerandinn er.

Fréttir af skemmdarverkum á bifreiðum í Breiðholti vöktu athygli fyrr í mánuðinum þegar slóð eyðileggingar virtist vera eftir fjóra drengi á aldrinum 16-22 ára. Ekki er vitað að svo stöddu hvort um sömu aðila sé að ræða.

Sjá einnig: Skemmdarverk í Breiðholti

Í nótt var að auki tilkynnt um eignarspjöll og hótanir í Grafarholti. Það mál er í rannsókn lögreglu að auki en vitað er hver var þar að verki.

Tveimur hjólum var stolið í hjólageymslu í Hraunbæ í gærkvöldi. Tilkynnt var um þjófnaðinn á áttunda tímanum í gærkvöldi en ekki er vitað hver var þar að verki.

Maður var handtekinn í gærkvöldi vegna minniháttar líkamsárásar í vesturhluta Reykjavíkur. Honum var sleppt eftir skýrslutöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×