Enski boltinn

Eiginkona Rio látin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rebecca Ellison, eiginkona Rio Ferdinand, er látin, en það var Rio sjálfur sem greindi frá þessi í yfirlýsingu. Rebecca hafði barist við krabbamein.

Ferdinand og Rebecca giftu sig 2009, en Rebecca hafði átt í baráttu við krabbamein í brjósti. Hún lést á föstudagskvöldið, en hún og Rio eiga þrjú börn saman; Lorenz níu ára, Tate six ára og Tia fjögurra ára.

„Rebecca, mín yndislega kona, lést eftir stutta baráttu við krabbamein á Royal Marsden spítalanum í London,” sagði Ferdinand á heimasíðu QPR.

„Hún var yndisleg móðir þriggja barna okkar. Henni mun alltaf vera saknað sem eiginkonu, systur, frænku, dóttur og barnabarni. Hún mun lifa í minningunni, sem leiðbeinandi og á hvetjandi hátt.”

„Hugur allra hjá QPR er með Rio og hans fjölskyldu á þessum gífurlega erfiðu tímum,” segir í yfirlýsingu frá QPR.

Leikmenn QPR munu leika með sorgabönd í leiknum gegn Liverpool síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×