Réðu svo óreyndan stjóra að ársmiðahafar fá endurgreitt Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. maí 2015 09:30 Darren Kelly með Oldham-treyjuna. mynd/heimasíða Oldham
Stuðningsmenn enska C-deildarliðsins Oldham Athletic eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við ráðningu nýja knattspyrnustjórans. Oldham tryggði sér áframhaldandi veru í C-deildinni á nýliðinni leiktíð og verður í deildinni 19. árið í röð. Stuðningsmenn félagsins höfðu vonast eftir að fá Iain Dowie sem knattspyrnustjóra liðsins eða verða vitni að frumraun Manchester United-goðsagnarinnar Pauls Scholes. Þess í stað réð stjórn félagsins hinn 35 ára gamla Darren Kelly til starfa, en hann hefur aldrei stýrt meistaraflokksliði. Hann hefur undanfarin ár þjálfað unglinga hjá York og síðar Sunderland. Óánægjan með ráðninguna er svo mikil að félagið þurfti að bregðast við. Það hefur ákveðið að endurgreiða þeim ársmiðahöfum sem vilja peninginn sinn aftur auk allra þeirra sem hafa keypt sér miða á einhverja leiki næsta vetur en treysta ekki nýliðanum. „Ráðning Darren Kelly hefur vafalítið komið mögum á óvart, en hann er ungur og ástríðufullur stjóri sem hefur metnað og vilja til að ná langt,“ segir Simon Corney, stjórnarformaður Oldham, á vef félagsins. Sjálfur er Kelly fullur sjálfstraust og hlakkar til að takast á við verkefnið. „Ég skil þetta. Ég er nýi maðurinn hjá þessu félagi. Fyrir mér er enginn betri en ég til að ná úrslitum með þetta lið. Vonandi sér fólk með tíð og tíma fyrir hvað ég stend,“ segir Darren Kelly.
Enski boltinn Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Handbolti ÍBV - Haukar | Oddaleikur í Eyjum Handbolti Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Íslenski boltinn Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti PSG - Bayern München | Risaleikur í París Fótbolti Fleiri fréttir Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Sjá meira