Erlent

Nígeríska konan tengdist ekki hryðjuverkasamtökum

Atli Ísleifsson skrifar
Boko Haram hafa gert fjölmargar árásir í norðurhluta Nígeríu og hafa margoft fengið konur til að framkvæma sjálfsvígssprengjuárásir á fjölförnum stöðum í landinu.
Boko Haram hafa gert fjölmargar árásir í norðurhluta Nígeríu og hafa margoft fengið konur til að framkvæma sjálfsvígssprengjuárásir á fjölförnum stöðum í landinu. Vísir/AFP
Lögregla í Nígeríu hefur staðfest að konan sem var barin til dauða af æstum múg á markaði í Bauchi um síðustu helgina hafi átt við geðræn vandamál að stríða og ekki tengst hryðjuverkasamtökum á nokkurn hátt.

Ráðist var á hina 33 ára Thabita Haruna eftir að gestir markaðar í Bauchi grunuðu hana um að vera sjálfsvígssprengjumann og hún neitaði að láta leita á sér.

Lögregla er enn með málið til rannsóknar og enn hefur enginn verið handtekinn vegna málsins.

Hryðjuverkasamtökin Boko Haram hafa gert fjölmargar árásir í norðurhluta Nígeríu og hafa margoft fengið konur til að framkvæma sjálfsvígssprengjuárásir á fjölförnum stöðum í landinu.

Liðsmenn samtakanna vilja koma á íslömsku ríki á svæðinu og hefur nígerískum stjórnvöldum reynst erfitt að stöðva framgang samtakanna síðustu ár.


Tengdar fréttir

Kona barin til dauða í Nígeríu

Múgur manns barði unga konu til dauða í Bauchi í norðausturhluta Nígeríu í gær.Haldið var að hún ætlaði að svipta sig lífi í sjálfsmorðssprengjuárás.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×