Harmleikur í Toronto: Þriggja ára drengur varð úti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. febrúar 2015 16:14 Drengurinn hét Elijah Marsh. Upptökur úr öryggismyndavélum sýna drenginn á leið út úr fjölbýlishúsinu.
Þriggja ára gamall kanadískur drengur lét lífið í gærmorgun eftir að hafa farið af heimili ömmu sinnar um miðja nótt. Drengurinn hélt um klukkan fjögur að staðartíma út ískalda nóttina á meðan fjölskylda hans svaf fasta svefni. Sá stutti var aðeins klæddur í bleyju og bol auk stígvéla. Kanadískir miðlar greina frá. Drengurinn, Elijah Marsh, fór að sofa um hálf tíuleytið á föstudagskvöldið en fjölskylda hans varð ekki vör við að hann var ekki í rúmi sínu fyrr en hún vaknaði um hálf átta á laugardagsmorgun. Við tók leit lögreglu og sjálfboðaliða og fannst drengurinn liggjandi utan við hús í hverfinu klukkan 10:20 sama morgun. Tæpum fjórum tímum síðar var hann úrskurðaður látinn. Afar kalt er í Toronto en um fjögurleytið, þegar drengurinn yfirgaf heimili sitt, var 19 gráðu frost. Ef tekið er mið af vindi var eins og um 28 stiga frost væri að ræða.Elijah Marsh bjó ásamt fjölskyldu sinni í fjölbýlishúsi í Toronto.Íbúar Toronto og Kanada syrgja drenginn og ræddi borgarstjórinn John Tory við fjölmiðla í morgun vegna málsins. „Þetta er mikill harmleikur,“ sagði borgarstjórinn. „Ég sendi samúðarkveðjur frá dýpstu hjartarótum til fjölskyldunnar. Hugur og bænir íbúa Toronto eru hjá ykkur á þessum tímum,“ bætti hann við á Twitter síðar um daginn. Lögreglustjórinn Bill Blair sagðist telja að allir íbúar Toronto væru særðir vegna atburðarins. „Ég held að þetta minni okkur á að fara heim og faðma börnin okkar enn þéttar.“Uppfært klukkan 01:38 Í fyrri útgáfu fréttarinnar stóð að drengurinn hefði verið á heimili sínu. Hið rétta er að hann var í pössun hjá ömmur sinni eins og var oft tilfellið þegar móðir hans þurfti að vinna.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira